Inntökupróf í Hjúkrunarfræðideild 2016
Inntökupróf í Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands (A-próf) verða haldin tvisvar. Fyrra prófið fer fram laugardaginn 19. mars 2016 og síðara prófið, sem auglýst verður sérstaklega, fer fram 10. júní 2016.
Opnað verður fyrir skráningu í inntökuprófið fyrir miðjan febrúar. Prófað verður í Háskóla Íslands, ásamt nokkrum stöðum á landsbyggðinni. Skráningarfrestur og prófstaðir verða nánar auglýst síðar.
Til þess að þreyta inntökuprófið þurfa umsækjendur ekki að hafa lokið stúdentsprófi, lokaprófi frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú), eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla.
Til að hefja nám við Hjúkrunarfræðideild skal stúdent hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Þá nægir lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú) til inngöngu í Hjúkrunarfræðideild. Sjá nánar í inntökuskilyrðum Hjúkrunarfræðideildar.
Nemendur sem hyggjast hefja nám í Hjúkrunarfræðideild skrá sig til náms við deildina í samræmi við almennar reglur Háskóla Íslands þegar opnað verður fyrir skráningu í vor.
Í inntökuprófinu, sem er Aðgangspróf fyrir háskólastig (A-próf), er prófað í eftirtöldum fimm þáttum: upplýsinganotkun, málfærni, lesskilningi, ensku og stærðum og reiknanleika.
Við ákvörðun um inntöku í BS-nám við Hjúkrunarfræðideild gildir frammistaða á inntökuprófinu 70% en meðaleinkunn úr kjarnagreinunum íslensku, ensku og stærðfræði í námi til stúdentsprófs 30%.