Við Matvæla- og næringarfræðideild er boðið upp á BS-nám í matvælafræði og næringarfræði. BS-námið er 180 einingar til þriggja ára.
BS-námið er mjög fjölbreytt og kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum, dæmatímum, verklegum æfingum og verkefnavinnu. Nemendur eru yfirleitt fáir á hverju ári og tengsl innan nemendahópsins og við kennara náin. Námið veitir mjög góðan undirbúning fyrir framhaldsnám og margvísleg atvinnutækifæri.
Í BS-náminu er lögð áhersla á:
- Sjálfstæði
- Vísindaleg vinnubrögð
- Lausnamiðað nám
- Raunhæf verkefni
- Nýsköpun
BS-nám í matvælafræði er þverfaglegt og byggir á grunni raun- og lífvísinda og verk- og tæknifræði en veitir einnig innsýn í heilbrigðisvísindi,
samfélagsfræði, rekstur, umhverfismál og margt fleira. Þannig eru 7 námskeið sameiginleg með nemendum í næringarfræði og 12 námskeið sameiginleg með lífefna- og sameindalíffræði.
BS-nám í næringarfræði er einnig þverfaglegt og byggir á grunni raun- líf og heilbrigðisvísinda en veitir einnig innsýn í samfélagsfræði, sálfræði, samtalstækni, rekstur, umhverfismál og margt fleira.