Tilgangur Tækjakaupasjóðs Háskóla Íslands er að efla rannsóknir og kennslu við háskólann. Tækjakaupafé er úthlutað af tækjakaupanefnd á grundvelli umsókna frá kennurum og sérfræðingum, sem forgangsraðað er af fræðasviðum. Styrkhæfir eru akademískir starfsmenn sem ráðnir hafa verið á grundvelli hæfnisdóms (lektorar, dósentar, prófessorar, sérfræðingar, fræðimenn og vísindamenn). Umsóknarfrestur er til 15. nóvember. Auglýsing 2025/Advertisement 2025 Umsóknareyðublað/Application form Ferli umsókna fyrir úthlutun: Umsækjendur sækja um miðlægt (eyðublað að ofan). Vísinda- og nýsköpunarsvið sér um að koma umsóknum í forgangsröðun fræðasviðanna. Stjórn Tækjakaupasjóðs úthlutar á grundvelli forgangsröðunarinnar í febrúar. Afgreiðsla styrkja: Skv. ákvörðun háskólaráðs eru tæki sem keypt eru fyrir styrk úr sjóðnum eign Háskóla Íslands. Fáist styrkur úr Tækjakaupasjóði er stofnað sérstakt verkefnisnúmer í bókhaldi Háskólans um styrkinn og er það tilgreint í úthlutunarbréfi. Hafa skal samráð við innkaupastjóra og fá samþykki hans fyrir pöntuninni. Veitta styrki verður að leysa út innan 12 mánaða frá úthlutun. Annars falla þeir niður. Möguleiki er að fá framlengingu í eitt ár í viðbót ef viðunandi rökstuðningur fylgir beiðni að mati stjórnar. Að öðrum kosti fellur styrkur niður. Nánari upplýsingar hjá Vísinda- og nýsköpunarsviði Reglur tækjakaupasjóðs Reglur fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009, 77. gr. Tækjakaupasjóður Háskóla Íslands Vinnureglur Kennarar og sérfræðingar Háskóla Íslands og stofnana hans, sem að jafnaði hafa verið ráðnir á grundvelli hæfnisdóms, geta sótt um stuðning sjóðsins. Tækjakaupasjóður styrkir kaup á sérhæfðum tækjum, gagnagrunnum, hugbúnaði og uppfærslum þar á til kennslu og rannsókna. Sjóðurinn styrkir ekki kaup á tækjum sem teljast til almenns reksturs eða skrifstofubúnaðar, svo sem venjulegar borð-, og fartölvur. Við mat á umsóknum er einkum horft til; forgangsröðunar fræðasviðs, aðstöðu umsækjanda, rannsóknaverkefna sem umsækjandi vinnur að, hvort tækið nýtist öðrum á viðkomandi sviði og til þess hvort um mótframlag er að ræða. Umsóknarferli og úthlutun: Sækja skal um til vísinda- og nýsköpunarsviðs og er umsóknarfrestur til 15. nóvember ár hvert. Vísinda- og nýsköpunarsvið sendir umsóknir til forgangsröðunar viðkomandi fræðasviðs. Fræðasvið skilar umsóknum til vísinda- og nýsköpunarsviðs fyrir 15. desember. Úthlutun skal lokið í febrúarmánuði. Samþykktar á fundi háskólaráðs 2.9.2021 Styrkúthlutanir Tækjakaupasjóður árið 2024 Tækjakaupasjóður árið 2023 Tækjakaupasjóður árið 2022 Tækjakaupasjóður árið 2021 Tækjakaupasjóður árið 2020 Tækjakaupasjóður árið 2019 Tækjakaupasjóður árið 2018 Tækjakaupasjóður árið 2017 Tækjakaupasjóður árið 2016 Tækjakaupasjóður árið 2015 Tækjakaupasjóður árið 2014 Tækjakaupasjóður árið 2013 Tækjakaupasjóður árið 2012 Tækjakaupasjóður árið 2011 Tækjakaupasjóður árið 2010 Tækjakaupasjóður árið 2009 Tækjakaupasjóður árið 2008 Tækjakaupasjóður árið 2007 Tækjakaupasjóður árið 2006 Tækjakaupasjóður árið 2005 Tækjakaupasjóður árið 2004 Tækjakaupasjóður árið 2003 Tækjakaupasjóður árið 2002 Tækjakaupasjóður árið 2001 Tækjakaupasjóður árið 2000 Tækjakaupasjóður árið 1999 Tækjakaupasjóður árið 1998 Rules for The University of Iceland Equipment Purchasing Fund (77) facebooklinkedintwitter