Sjálfbærar borgir og samfélög Gera borgir og íbúðarsvæði örugg, sjálfbær og öllum aðgengileg 11.1 Eigi síðar en árið 2030 geti allir orðið sér úti um fullnægjandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði, fátækrahverfi verði endurbætt og grunnþjónusta standi öllum til boða. 11.2 Eigi síðar en árið 2030 geti allir ferðast með öruggum sjálfbærum samgöngutækjum á viðráðanlegu verði á bættu vegakerfi. Lögð verði áhersla á betri almenningssamgöngur sem taka mið af fólki í viðkvæmri stöðu, konum, börnum, fötluðu fólki og öldruðum. 11.3 Eigi síðar en árið 2030 verði fjölgun í þéttbýli sjálfbær og íbúar alls staðar í heiminum taki meiri þátt í skipulagsmálum og samkomulagi um sjálfbærni. 11.4 Blásið til sóknar til þess að vernda og tryggja náttúru- og menningararfleifð heimsins. 11.5 Eigi síðar en árið 2030 dragi úr fjölda þeirra sem deyja í hamförum og þeirra sem bíða skaða af þeim völdum. Dregið verði úr beinu efnahagslegu tjóni af völdum hamfara, í hlutfalli af vergri landsframleiðslu í alþjóðlegum samanburði, þar á meðal vatnstjóni, og áhersla lögð á að vernda fátæka og fólk í viðkvæmri stöðu. 11.6 Eigi síðar en árið 2030 verði dregið úr skaðlegum umhverfisáhrifum í borgum, meðal annars með því að bæta loftgæði og meðhöndlun úrgangs. 11.7 Eigi síðar en árið 2030 verði græn svæði gerð örugg og aðgengileg fyrir almenning, einkum konur og börn, aldraða og fatlað fólk. Vísindamenn tengdir markmiðinu Bing WuPrófessor5254616wubing [hjá] hi.is Brynhildur DavíðsdóttirPrófessor5255233bdavids [hjá] hi.is Guðmundur Freyr ÚlfarssonPrófessorgfu [hjá] hi.is Gunnar Þór JóhannessonPrófessor5254055gtj [hjá] hi.is Hrund Ólöf AndradóttirPrófessor5254656hrund [hjá] hi.is Jónína EinarsdóttirPrófessor emerita5254508je [hjá] hi.is Jukka Taneli HeinonenPrófessor5254637heinonen [hjá] hi.is Karl BenediktssonPrófessor5254286kben [hjá] hi.is Kristín Vala RagnarsdóttirPrófessor emerita5255886vala [hjá] hi.is Rúnar UnnþórssonPrófessor5254954runson [hjá] hi.is Þröstur ÞorsteinssonPrófessor5254940thorstur [hjá] hi.is Þróunarlönd 11.A Stutt verði við jákvæð efnahags-, félags- og umhverfisleg tengsl milli þéttbýlis, þéttbýlla svæða í borgarjaðri og dreifbýlissvæða með því að styrkja áætlanir um byggðaþróun á landsvísu og innan svæða. 11.B Eigi síðar en árið 2020 hafi borgum og íbúðarsvæðum fjölgað þar sem áætlanir og stefnumál eru samþætt og miða að aðkomu allra, auðlindanýting verði betri, dregið hafi úr skaðsemi af völdum loftslagsbreytinga og forvarnir gegn hamförum hafi verið efldar. Útbúin verði heildræn áhættustýring vegna hvers kyns hamfara í samræmi við Sendai-rammaáætlunina 2015–2030 og henni framfylgt. 11.C Stuðningur verði veittur þeim þróunarlöndum sem eru skemmst á veg komin, meðal annars fjárhags- og tækniaðstoð, til þess að reisa öflugar byggingar úr byggingarefni á staðnum. Tengt efni Háskólinn og heimsmarkmiðin facebooklinkedintwitter