Háskóli Íslands brautskráir kandídata þrisvar á ári, í febrúar, júní og október. Næsta brautskráning verður föstudaginn 21. febrúar 2025 í Háskólabíói kl. 15. Kandídatar fá send rafræn bréf með nánari upplýsingum. Prófskírteini og viðaukar Við brautskráningarathafnir fá kandídatar sem ljúka bakkalár- og framhaldsnámi afhent prófskírteini og viðauka með skírteini þar sem fram koma á stöðluðu formi upplýsingar um það nám sem lokið er. Prófskírteinið er á íslensku ásamt staðfestri enskri þýðingu en viðaukinn á íslensku og ensku. Þessi gögn eru afhent kandídötum án endurgjalds. Nemendur sem ljúka diplómagráðu fá skírteini sín afhent á skrifstofu deildar sinnar. Ef kandídat er fjarverandi við brautskráningu þarf hann að nálgast þau síðar hjá sinni deild. Þeim tilmælum er beint til kandídata að þeir varðveiti prófskírteini sín vel! Hvert prófskírteini er aðeins gefið út í einu eintaki, undirrituðu af viðkomandi deildarforseta. Það er á ábyrgð skírteinishafa að varðveita prófskírteinið með öruggum hætti þannig að það glatist ekki. Brautskráningar frá Háskóla Íslands, aftur til 2017: Brautskráningar 2024 Febrúar Júní Október Brautskráningar 2023 Febrúar Júní Október Brautskráningar 2022 Febrúar Júní Október Brautskráningar 2021 Febrúar Júní Október Brautskráningar 2020 Febrúar Júní Október Brautskráningar 2019 Febrúar Júní Október Brautskráningar 2018 Febrúar Júní Október Brautskráningar 2017 Febrúar Júní Október Tengt efni Spurt og svarað um lokaverkefni og brautskráningar Doktorsvarnir við Háskóla Íslands facebooklinkedintwitter