Skip to main content

Starfsþjálfun erlendis

Starfsþjálfun/rannsóknavinna

Nemendur HÍ geta sótt um Erasmus+ styrk til starfsþjálfunar eða rannsóknarvinnu í háskólum, fyrirtækjum eða stofnunum í Evrópu. Einnig er hægt að fara í starfsþjálfun að loknu námi, í allt að tólf mánuði frá útskrift. Nemendur eiga þannig kost á dýrmætri alþjóðlegri starfsreynslu sem getur komið sér vel síðar meir. 

Nemendur geta fengið dvölina metna sem hluta af náminu við HÍ, sem hluta af lokaverkefni eða skráða í skírteinisviðauka.

Hvað segja nemendur?

Vasco Lopes
Kristín Brynjarsdóttir
Úlfar Steinn Hauksson
Vasco Dias Lopes
Meistaranemi í alþjóðasamskiptum í starfsþjálfun við sendiráð Portúgals hjá SÞ í Vínarborg

Starfsþjálfun hjá sendiráði og fastri sendinefnd Portúgals hjá Sameinuðu þjóðunum í Vínarborg var einstakt tækifæri til að öðlast hagnýta reynslu og dýpri skilning á diplómatíu, starfsemi Sameinuðu þjóðanna og flóknu ferlunum sem liggja að baki ákvarðanatöku á alþjóðavettvangi. Ég fór í starfsþjálfun til að öðlast raunverulega reynslu á mínu fræðasviði og til að styrkja stöðu mína í framtíðinni, hvort sem er á vinnumarkaði eða í frekara námi.

Kristín Brynjarsdóttir
Meistaranemi í lyfjafræði í starfsþjálfun við University of Innsbruck í Austurríki

Starfsþjálfun erlendis er einstakt tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn, kynnast nýju fólki og öðlast dýrmæta reynslu – bæði faglega og persónulega. Þetta er frábær leið til að prófa eitthvað nýtt, stíga út fyrir þægindarammann og styrkja sig fyrir framtíðina. Ég myndi klárlega gera þetta aftur ef ég gæti!

Úlfar Steinn Hauksson
Starfsþjálfunarnemi við egf Manufaktur í Þýskalandi

Starfsþjálfun hjá erlendu stórfyrirtæki gerir mann klárlega verðmætari starfskraft og maður hefur ákveðið forskot fram yfir aðra sem ekki hafa þessa alþjóðlegu reynslu og tengsl. Það er dýrmætt að fara út fyrir þægindarammann, kynnast annarri menningu og starfsumhverfi og fá um leið alþjóðlega starfsreynslu.

Hafðu samband

Alþjóðasvið
Háskólatorgi, 3. hæð
Sími: 525-4311
Netfang: ask@hi.is
Starfsfólk Alþjóðasviðs

Opið alla virka daga, kl. 10.00-15.00