Skip to main content
19. október 2015

Ráðstefnan Hjúkrun í fararbroddi fer fram í annað sinn

Þann 14. janúar 2016 verður ráðstefnan „Hjúkrun í fararbroddi“ á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði haldin í annað sinn.

Rúmlega tvö hundruð þátttakendur sóttu síðustu ráðstefnu sem fram fór í Stakkahlíð í janúar 2014. Þar var greint frá um þrjátíu spennandi rannsóknum í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði í sex málstofum. Skoða myndir frá „Hjúkrun í fararbroddi“ 2014. Skoða ágripabók.

Upplýsingar fyrir þátttakendur

Útdrættir fyrir erindi, veggspjöld og vinnusmiðjur skulu vera að hámarki 250 orð og skal skipta efninu niður í: Inngang, aðferð, niðurstöður/meginmál og ályktanir. Útdráttum skal skilað eigi síðar en 1. desember á netfangið margbjo@hi.is. Reiknað er með að hvert erindi taki 15 mínútur og þar af eru 5 mínútur í umræður.

Kennarar, doktorsnemendur í hjúkrunarfræði og ljósmóðurfræði, meistaramenntaðir hjúkrunarfræðingar og ljósmæður eru hvattir til þess að senda inn ágrip.

Kristín Georgsdóttir (lengst til hægri), nemi í hjúkrunarfræði,  hlaut viðurkenningu úr Minningarsjóði Guðrúnar Marteinsdóttur fyrir frábæran námsárangur í heilsugæsluhjúkrun á ráðstefnunni 2014.