Stafrænt samfélag og alþjóðleg borgaravitund á ráðstefnu Aurora
Þann 26.-27. ágúst býður Aurora nemendum og starfsfólki HÍ á rafræna ráðstefnu þar sem kynntar verða áhugaverðar rannsóknir á sviði stafræns samfélags og alþjóðlegrar borgaravitundar. Gríðarlegar tækniframfarir síðastliðinna ára og aukin hnattræn tengsl hafa víðtæk og djúpstæð áhrif á flest svið samfélagsins og á daglegt líf okkar allra.
Vísindalegar rannsóknir og þverfagleg menntun á þessu sviði eru undirstaða upplýstrar umræðu og stefnumótunar til að bregðast við þeim miklu og öru samfélagslegum breytingum sem við stöndum frammi fyrir í kjölfar aukinnar stafvæðingar og alþjóðavæðingar samfélagsins.
Á ráðstefnunni munu 24 rannsakendur frá aðildaháskólum Aurora veita innsýn í þær fjölbreyttu rannsóknir sem skapa nýja þekkingu á þessu mikilvæga áherslusviði Aurora. Þeirra á meðal er Tryggvi Thayer, kennsluþróunarstjóri Menntavísindasviðs, sem mun fjalla um framtíð menntunar og áhrif tækni á nám og kennslu. Erindið fer fram 26. ágúst klukkan 13:35.
Áhugasamir geta fundir nánari upplýsingar og hlekk til að tengjast á netinu í dagskrá ráðstefnunnar