Skip to main content
4. maí 2016

Tannsmíðanemar kynntu lokaverkefni sín

Tannsmíðanemar á þriðja ári við Tannlæknadeild Háskóla Íslands kynntu lokaverkefni sín þann 2. maí sl. í Læknagarði. Nemarnir héldu stuttan fyrirlestur um verkefni sín ásamt því að sitja fyrir svörum. Viðfangsefnin voru af ýmsum toga en lokaverkefnin og höfundar þeirra eru:

Notkun á stuðningsgómum og -skinnum að lokinni tannréttingu og upplifun sjúklinga

eftir Brynjar Sæmundsson

Starfstengdir sjúkdómar tannsmíða. Um heilsu tannsmiða og aðbúnað á vinnustöðum

eftir Alexander Nökkva Baldursson

Viðbrögð og verkferlar starfsfólks í íþróttamiðstöðvum við tann- og munnáverkum á slysstað

eftir Ester Rut Þórisdóttur og Jóhönnu Friðriksdóttur

Þjónustukönnun á Tannlæknadeild Háskóla Íslands; viðhorf og reynsla sjúklinga af þjónustu Tannlæknadeildar Háskóla Íslands

eftir Thelmu Huldu Símonardóttur

Við óskum þeim öllum góðs gengis í framtíðinni. 

Tannsmíðanemar við HÍ
Thelma Hulda Símonardóttir, Alexander Nökkvi Baldursson, Brynjar Sæmundsson, Jóhanna Friðriksdóttir og Ester Rut Þórisdóttir