Skip to main content
29. maí 2015

Undanþága frá inntökuskilyrðum í BS-nám

Deildarráð Hjúkrunarfræðideildar hefur samþykkt með vísan í 47. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009 að taka við umsóknum um undanþágu frá formlegum inntökuskilyrðum um stúdentspróf vegna háskólaáranna 2015-2016 og 2016-2017. Umsækjandi um slíka undanþágu skal hafa lokið sjúkraliðanámi og jafnframt gilda eftirtalin skilyrði:

  • Lágmarksaldur 25 ár
  • 5 ára starfsreynsla sem sjúkraliði í minnst 80% starfshlutfalli að meðaltali
  • Lágmark 9 einingar í ensku, 15 einingar í íslensku og 6 einingar í stærðfræði

Umsóknarfrestur um nám er til 5. júní 2015. Þeim sem samþykktir verða á þessum forsendum er heimilt að þreyta aðgangspróf (A-próf) til að hefja grunnnám í hjúkrunarfræði næsta haustmisseri (2015), sbr. reglur um inntöku nýnema og aðgangspróf í Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, nr. 24/2015.

Aðgangsprófið (A-próf) verður haldið 12. júní 2015.

""