24. janúar 2017
Verið velkomin á Heilsutorg í febrúar
Opnað hefur verið fyrir bókanir á Heilsutorgi fyrir lok janúar og febrúar 2017. Hægt verður að fá tíma á þriðjudögum og fimmtudögum.
Heilsutorg er heilbrigðismóttaka fyrir nemendur Háskóla Íslands. Þjónustan á Heilsutorgi er veitt af nemendum í framhaldsnámi á Heilbrigðisvísindasviði undir handleiðslu leiðbeinenda. Nemendurnir vinna saman í litlum hópum með þeim sem sækir þjónustuna og í sameiningu greina þau vandann og gera meðferðaráætlun.
Heilsutorg er staðsett á Heilsugæslunni í Glæsibæ, Álfheimum 74.
Nánari upplýsingar og tímapantanir fara fram á heimasíðu Heilsutorgs.