Skip to main content
1. október 2023

Með fróðleik í fararnesti hlýtur viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun

Með fróðleik í fararnesti hlýtur viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun - á vefsíðu Háskóla Íslands

Samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands „Með fróðleik í fararnesti“, hlaut viðurkenningu fyrir vísindamiðlun sem afhent var við opnun Vísindavöku Rannís í gær, laugardaginn 30. september. Við sama tækifæri hlaut Guðrún Bachmann, kynningarstjóri vísindamiðlunar við Háskóla Íslands, heiðursviðurkenningu fyrir framlag sitt til Vísindavöku.

Með fróðleik í fararnesti eru fræðandi gönguferðir í náttúrunni þar sem fræða- og vísindafólk HÍ miðlar af þekkingu sinni til almennings, barna og ungmenna um fjölbreyttar rannsóknir, ekki síst á lífríki og umhverfi. Áhersla er lögð á markvissa og skemmtilega fræðslu til almennings um leið og boðið er upp á hreyfingu og samveru fyrir alla fjölskylduna.

Fræðagöngurnar byrjuðu sem nýjung í vísindamiðlun til almennings og var þeim strax afar vel tekið af almenningi. Markmiðið með ferðunum er að veita fólki á öllum aldri spennandi valkost til að hreyfa sig í borgarlandinu og fá að auki skemmtilegan og afar gagnlegan fróðleik um rannsóknir, nýsköpun, vísindi og fræði og í raun flest það sem ber fyrir augu í göngunum. 

Ætlunin í upphafi var að brydda upp á ferðunum sem nýjum vísindamiðlunarvalkosti fyrir fjölskyldur á aldarafmæli Háskóla Íslands 2011 í samstarfi við Ferðafélagið. Hins vegar urðu vinsældirnar það miklar að ekki var nokkur möguleiki að hætta og undanfarinn áratug hefur HÍ alfarið unnið með Ferðafélagi barnanna sem er angi innan FÍ. Á yfirstandandi ári hefur verið metþátttaka í öllum ferðum, en aldrei í 12 ára sögu verkefnisins hafa fleiri mætt í fræðagöngurnar. Umfjöllun um verkefnið hefur einnig verið afar ríkuleg í fjölmiðlum sem hefur aukið áhrif miðlunarinnar á samfélag.

Guðrún Bachmann tekur við viðurkenningu sinni fyrir framlag sitt til Vísindavöku. Með henni á myndinni eru þau Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Rannís, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. MYND/Arnaldur Halldórsson

Pöddur, fjara, fuglar, fiskar, samfélag og sjálfbærni

Gríðarlegur fjöldi vísindafólks hefur stýrt þessum göngum en líklega er enginn þekktari en Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við HÍ og núverandi forseti Íslands. Hann leiddi fyrir nokkrum árum göngu ásamt Helga Gunnlaugssyni, prófessor í afbrotafræði við HÍ, en þeir fjölluðu um mótmæli í miðborginni og glæpi og refsingu í sögulegu samhengi. Af öðrum viðfangsefnum má nefna norðurljós, pöddur, fiska og farfugla og hvernig megi nýta afurðir náttúru Íslands, eins og krækling, jurtir og sveppi. Fræðsla um jarðfræði, eldgos og jökla hefur líka verið vinsæl, auk þess sem rætt hefur verið um sögu, menningu, nýsköpun og sjálfbærni. 

„Hver ganga tekur fyrir ákveðið viðfangsefni þar sem vísinda- og fræðafólk miðlar þekkingu og rannsóknum beint til þátttakenda. Þannig er mikilvægi rannsókna fyrir samfélagið og umhverfið í brennidepli í bland við skemmtilega fræðslu og holla útivist. „Með fróðleik í fararnesti“ er því verðugur handhafi viðurkenningar Rannís fyrir vísindamiðlun árið 2023,“ segir í tilkynningu Rannís vegna verðlaunanna.

Guðrún verðlaunuð fyrir framlag sitt til Vísindavöku

Við opnun Vísindavöku, sem var afar fjölsótt, veitti Rannís einnig í fyrsta sinn sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag til Vísindavöku. Þau hlaut Guðrún Bachmann, kynningarstjóri vísindamiðlunar við HÍ, en hún hefur komið að Vísindavöku allt frá upphafi. Guðrún hefur bæði verið í undirbúningshópi Rannís vegna Vísindavöku og stýrt framlagi Háskóla Íslands á hátíðinni, en Háskólinn hefur jafnan verið stærsti sýnandinn á vökunni.

„Frá því að við byrjuðum að halda Vísindavöku árið 2006 hefur Guðrún Bachmann verið ómissandi. Ég veit ekki hvernig við hefðum getað gert þetta án hennar. Hún hefur verið innblástur, full af hugmyndum og haldið utan um framlag Háskóla Íslands,“ sagði Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Rannís, þegar tilkynnt var um viðurkenninguna en það var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem afhenti Guðrúnu viðurkenninguna.

Fulltrúar Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands ásamt Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við afhendingu vísindamiðlunarverðlaunanna.