Skip to main content
27. janúar 2025

Áfram samstarf við Hafró um meistaranám í sjávar- og vatnalíffræði

Áfram samstarf við Hafró um meistaranám í sjávar- og vatnalíffræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands og Hafrannsóknastofnun hafa endurnýjað samstarfsamning um framhaldsnám í sjávar- og vatnalíffræði með áherslu á fiskifræði. Samningurinn er til fimm ára.

Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands hefur í samstarfi við Hafrannsóknastofnun boðið upp á námið allt frá haustinu 2020 en um er að ræða tveggja ára meistaranám sem er kjörsvið innan meistaranáms í líffræði. Námið var í upphafi byggt upp til jafns af námskeiðum og rannsóknarverkefni en eftir endurskipulagningu námsins taka nemendur nú námskeið til 30 eininga og vinna 90 eininga rannsóknaverkefni.

Samningurinn felur m.a. í sér að Hafrannsóknastofnun greiðir laun sérfræðings sem hefur umsjón með meistaranáminu og sinnir jafnframt kennslu og leiðbeiningu nema. Þá býður stofnunin upp á aðstöðu fyrir námið eins og við á í húsakynnum sínum og skipsferðir í þeim rannsóknarverkefnum sem meistaranemar vinna. Þá er stefnt að því að bjóða nemendum í dagsferð á rannsóknaskipi stofnunarinnar sem hluta af náminu eins og tíðkast hefur undanfarin ár.

Sérfræðingar Hafró geta leiðbeint meistaranemum

Samningurinn kveður enn fremur á um að kennd verði áfram námskeið í samvinnu Líf- og umhverfisvísindadeildar og sérfræðinga Hafró. Þau eru bæði fræðileg og verkleg, og fjalla um vistkerfi sjávar, vatnalíffræði og fiskveiðistjórnun og er mikil áhersla á kynningu á nálgunum og aðferðum sem notaðar eru við rannsóknir á sviðinu.

Enn fremur er gert ráð fyrir því í samstarfssamningnum að sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar eða annarra rannsóknastofnan geti verið í hópi aðalleiðbeinenda í rannsóknaverkefnum nemenda en umsjónarkennarar verkefnanna verða fastir akademískir kennarar við námsbraut í líffræði. Enn fremur verður áfram ákvæði í samningnum um að sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar, sem taka mikinn þátt í kennslu eða leiðbeiningu verkefna, geti sótt um að verða gestakennarar við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. 

Við undirritun eru næstum tveir tugir nemenda í MS-náminu, bæði innlendir og erlendir, og eru rannsóknarverkefni þeirra ærið fjölbreytt.

Það voru þeir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, og Gunnar Þór Jóhannesson, varadeildarforseti Líf- og umhverfisvísindadeildar, sem undirrituðu samstarfssamninginn nýja en viðstaddir voru einnig Arnar Pálsson, prófessor við deildina, og Theódór Kristjánsson, sérfræðingur á Ferskvatns- og eldissviði Hafrannsóknastofnunar.

Efri röð frá vinstri: Theódór Kristjánsson, Gunnar Þór Jóhannesson, Arnar Pálsson og Sigurður Magnús Garðarsson. Sitjandi eru Þorsteinn Sigurðsson og Jón Atli Benediktsson.