Skip to main content

Menningarhátíð í Hörpu

Menningarhátíð í Hörpu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Opnunarhátíð

Hvað: Myndlistar·sýning og gjörningur.
Myndlistar·sýningin heitir Bjartast á annesjum.
Fjöl·leikhúsið verður með gjörning. 

Hvar: Norðurljósasalur 1. hæð í Hörpu, Austurbakka 2, 101 Reykjavík

Hvenær: 22. febrúar millu klukkan 6:30 og 8 eftir hádegi (18.30-20:00)

Hátíðin er öllum opin að kostnaðarlausu. 

Opnunarhátíðin hefst á stuttri ræðu áður en myndlistasýningin Bjartast á annesjum verður opnuð. Myndlistarsýningin samanstendur af þrívíðum verkum. Þá verður gjörningur fluttur af Fjölleikhúsinu. Gjörningurinn stendur yfir frá 18:30 - 19:00. 

Sýnendur eru Þórir Gunnarsson, Kolbeinn Jón Magnússon, Helga Matthildur Viðarsdóttir, Gígja Garðarsdóttir, Atli Már Indriðason, Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Elín Sigríður María Ólafsdóttir sem vinna að verkum sínum hjá Listvinnzlunni, auk þeirra sýnir listafólk sem starfar í listasmiðju Hlutverkaseturs  tvo sameiginlega skúlptúra sem heita Tilfinningavitar. 

Sviðslistahátíð

Hvað: Leikhús·sýning.
Nokkrir leikhópar sýna brot úr leikritunum sínum.
Madame Tourette verður kynnir kvöldsins.
Þú getur lesið meira um leikritin með því að smella á nöfnin fyrir neðan.

Hvar: Norðurljósasalur í Hörpu, Austurbakka 2, 101 Reykjavík

Hvenær: 22. febrúar milli klukkan 8 og 10 eftir hádegi (20-22)

Hátíðin er öllum opin að kostnaðarlausu. Það þarf að taka frá miða á sviðslistahátíðina á tix.is (0 krónur)

Sýnd verða brot úr verkunum, Fúsi, aldur og fyrri störf, Taktu flugið beibí, Svartir fuglar, Eden og Dúettar. Gjörningurinn Er bara svona og tónlistarmyndbandið Hjálpum þeim verða frumflutt. Gestgjafi verður Elva Dögg Gunnarsdóttir einnig þekkt sem Madam Tourette.

Madame Tourette

Elva Dögg er uppistandari og konan á bak við hina óviðjafnanlegu Madam Tourette. Elva Dögg safnar greiningum og er nú þegar greind með Tourette, ADHD, þráhyggju- og árátturöskun og astma. 

Gestgjafinn Madame Tourette

Tungumál

  • Íslenska
  • Táknmálstúlkun
  • Rittúlkun á ensku
  • Sjónlýsingar á íslensku og ensku

Aðgengi

  • Lyftur
  • Aðgengileg salerni
  • Skynvænt rými 

Strætó

Margir strætisvagnar stoppa við Lækjartorg.