Skip to main content
26. apríl 2022

Líftækni á Íslandi – Hvert stefnum við?

Líftækni á Íslandi – Hvert stefnum við? - á vefsíðu Háskóla Íslands

Kjötrækt úr stofnfrumum og ný lyf við langvinnum lungnasjúkdómum eru meðal þess sem verða til umfjöllunar á þriðja fundi Alvotech og Háskóla Íslands í fyrirlestraröðinni „Framtíð nýsköpunar“ miðvikudaginn 27. apríl kl. 14-16 í Hátíðasal Háskóla Íslands. Viðburðurinn er öllum opinn en hann verður einnig sendur út í streymi.

Fundurinn ber yfirskriftina „Líftækni á Íslandi – Hvert stefnum við?“ Að þessu sinni verður sjónum beint að framtíð líftækni á Íslandi, en líftækniiðnaðurinn hefur vaxið ört á undanförnum áratugum. Mikil uppbygging hefur átt sér stað og dýrmæt þekking skapast með öflugu samstarfi vísindasamfélags og atvinnulífs. Í þessum þriðja viðburði í fundarröðinni verður rýnt í framtíð nýsköpunar í líftækni á Íslandi.

Opnunarávarp flytur:

  • Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands

Erindi flytja:

  • Kristín Björk Eiríksdóttir, deildarstjóri á lyfjavísindasviði hjá Alvotech – „Níu ár – og hvað svo?“
  • Björn Örvar, vísindastjóri hjá ORF Líftækni – „Er líftæknin á leið í kjötrækt?“
  • Friðrik Garðarsson, stofnandi og nýsköpunarstjóri EpiEndo Pharmaceuticals – „Kringumstæður til vaxtar og viðgangs nýsköpunarfyrirtækja í líftækni og lyfjaþróun á Íslandi og tækifæri þeirra til alþjóðasóknar“
  • Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland – „Frumkvöðlar og frumútboð: Skráningar lyfja- og líftæknifyrirtækja á Norðurlöndunum“

Fundarstjóri er Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech.

Að loknum erindum fara fram pallborðsumræður.

Viðburðurinn fer fram á íslensku.

Nánar um fyrirlestrarröðina

Logo fundar