Opið fyrir tilnefningar til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2021
Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna jafnréttismála 2021 en hægt er að skila inn tilnefningum til og með 16. nóvember. Flokkum í Hvatningarverðlaununum hefur nú fjölgað í þrjá og er þeirri nýbreytni ætlað að mæta samtímaþróun á víðtækari skilgreiningu jafnréttis og fjölbreytileika. Því verða verðlaunin veitt í þremur flokkum, með áherslu á kynjajafnrétti, fjölmenningu og fötlun.
Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands standa að verðlaununum.
Markmiðið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja athygli á fyrirtækjum, sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til þess að gera slíkt hið sama. Stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja sem skapað hafa góða fyrirtækjamenningu þar sem jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika samfélagsins liggur til grundvallar eru hvattir til að senda inn tilnefningu.
Skilafrestur tilnefninga er til og með 16. nóvember.
Einungis er hægt að tilnefna skráða félagsmenn Samtaka atvinnulífsins til Hvatningarverðlauna jafnréttismála.
Verðlaunin eru nú veitt í níunda sinn, en árið 2020 voru það Sjóvá og Pink Iceland sem hlutu verðlaunin.
Verðlaunin eru afhent við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal Háskóla Íslands sem fram fer 30. nóvember.
Frekari upplýsingar er að finna á vef Samtaka atvinnulífsins.