Skip to main content
6. febrúar 2022

Skólahald í byggingum HÍ fellur niður á morgun til hádegis hið minnsta

Skólahald í byggingum HÍ fellur niður á morgun til hádegis hið minnsta - á vefsíðu Háskóla Íslands

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sendi meðfylgjandi tilkynningu á starfsfólk og stúdenta í dag (6. febrúar 2022):

„Kæru nemendur og samstarsfólk.

Vegna mjög slæmrar veðurspár frá Veðurstofu Íslands fyrir höfuðborgarsvæðið fellur allt skólahald í byggingum Háskóla Íslands niður á morgun til hádegis hið minnsta. Kennarar munu leitast við að færa kennsluna á netið eftir því sem kostur er.
 
Spáð er suðaustan roki eða ofsaveðri með snjókomu og skafrenningi. Um er að ræða rauða veðurviðvörun sem gildir frá klukkan 4.00 í nótt til kl. 8.30 í fyrramálið. Vegna óveðursins hefur Ríkislögreglustjóri ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna frá miðnætti í kvöld en það er gert  í samráði við alla lögreglustjóra á landinu. 
 
Strætó hefur aflýst öllum morgunferðum á höfuðborgarsvæðinu og á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að Strætó geti hafið akstur í borgarlandinu á ný um kl. 10 í fyrsta lagi.

Þar sem spáð er ofankomu og skafrenningi eru miklar líkur á að mjög þungfært verði víða á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið, ekki síst í efri byggðum, og ekkert ferðaveður. Ég hvet ykkur því til að huga vel að aðstæðum í fyrramálið og halda kyrru fyrir og fylgjast vel með tilkynningum frá Veðurstofu, Almannavörnum og á Facebook-síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Gangi ykkur sem allra best og farið að öllu með gát. 

Jón Atli Benediktsson, rektor“

Nemandi í óveðri