Viltu fótgímu eða slímgump? - Sveppaganga á miðvikudag
Háskóli Íslands og Ferðafélag barnanna, angi innan Ferðafélags Íslands, standa fyrir sveppatínslu í landi Heiðmerkur á morgun, miðvikudaginn 18. ágúst. Sveppir eru algert sælgæti og það sem er skemmtilegast við þá – þeir vaxa villtir í íslenskri náttúru og ekki síst í skóglendi eins og í Heiðmörk. Það er hins vegar afar mikilvægt að þekkja þá ætu frá þeim vondu og jafnvel eitruðu.
Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, ætlar að leiða göngufólk í allan sannleika um sveppi í göngunni sem er alveg ókeypis. Mæting er kl. 17 á einkabílum á bílastæði við Rauðhóla. Haldið verður í halarófu frá bílastæðinu lengra inn í Heiðmörkina og ætla má að ferðin í heild sinni taki um tvær klst. Gísli Már hvetur fólk til að koma með körfur eða ílát undir fenginn.
Ætir sveppir eru um land allt
Sveppagangan hefur unnið sér fastan sess í tilverunni en hún féll reyndar niður í fyrra vegna COVID-19. Í þessari ferð hafa fjölskyldur notið fegurðar Heiðmerkur og fróðleiks á sama tíma um sveppi. Gísli Már verður ekki einn á ferð við að leiðbeina því hann mætir ásamt nemendum Háskóla Íslands sem allir hafa sérþekkingu á íslenskum sveppum.
„Um 2.100 tegundir sveppa er skráðar á Íslandi og á hverju ári bætast við nýjar tegundir í þennan sérstaka flokk lífvera,“ segir Gísli Már og bætir því við að sumar sveppategundir hafi m.a. flust hingað með trjátegundum því margar þeirra eigi sveppi sem sambýlisveru, t.d. lerki og fura.
Að Gísla sögn getur það reynst flókið að finna æta sveppi því um tvö þúsund sjálfstæðar tegundir sveppa og sjö hundruð tegundir fléttna vaxa á Íslandi. „Fléttur eru sambýli svepps og þörunga. Af allri þessari fungu eru aðeins um 30 tegundir sveppa ætar á Íslandi og bragðast vel. Þar af eru aðeins rúmlega tíu borðaðar reglulega. Sumar flétturnar eru einnig ætar, þar á meðal fjallagrös og hreindýramosi.“
Hægt er að finna æta sveppi um land allt og því má reikna með að vel beri í veiði á miðvikudag í Heiðmörkinni sem er kjörlendi fyrir sveppi en sveppir þrífast alla jafna vel nálægt trjágróðri. „Bestu sveppasvæðin landsins eru á Vesturlandi, í Borgarfirði og á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum en þar má finna kóngssveppi og kantarellur,“ segir Gísli Már.
Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands hafa staðið fyrir sveppaferðum síðsumars í Heiðmörk allt frá árinu 2011 og hafa þær notið mikilla vinsælda enda er þar að finna fjöldan allan af girnilegum sveppum í góðu árferði. MYND/Jón Örn Guðbjartsson
Fótgíma er æt og líka slímgumpur
Sveppir bera margir furðuleg nöfn og ekki eru öll þeirra beint girnileg. Fótgíma og slímgumpur eru þannig kannski ekki alveg með heppilegasta heitið en Gísli Már segir að þessir tveir séu gómsætir sveppir og líka sortukúla og mjúkfísi.
Í ferðinni í Heiðmörk á miðvikudag verður ekki bara sveppunum safnað því fróðleikur um verkun og eldun fylgir með. Nöfn á sveppum á íslensku eru mörg hver algerlega mögnuð. „Svo má kannski finna gulltoppu, sem er eitruð,“ segir Gísli Már, „og líka lerkisveppi, gullbrodda og sortukúlu.“
Við matreiðslu sveppa er allra mikilvægast að fólki viti að það hafi æta tegund á milli handanna. Næstmikilvægast er að elda eða steikja sveppi vel því sumir geta valdið magaverkjum ef þeir eru ekki eldaðir nógu lengi.
Þátttakendur eru hvattir til að huga mjög vandlega að einstaklingsbundnum sóttvörnum og að þessu sinni er heildarfjöldi einungis 200 manns og því nauðsynlegt að skrá sig til þátttöku á heimasvæði Ferðafélagsins.
Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát fyrir sveppina eins og áður sagði en gangan er hluti af samstarfi Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“ sem hefur staðið frá aldarafmæli skólans árið 2011.