HÍ og Alvotech standa saman að fundaröð um nýsköpun og atvinnulíf
Alvotech og Háskóli Íslands hleypa af stokkunum nýrri fundaröð um samstarf vísindasamfélags og atvinnulífs fimmtudaginn 9. september með þátttöku framúrskarandi vísindamanna og sérfræðinga í fremstu röð. Á fyrsta fundinum verður áhersla á tækifæri sem felast í líftækni fyrir íslenskt samfélag.
Fundaröðin sem nefnist „Framtíð nýsköpunar - Hvernig vísindasamfélagið og atvinnulífið geta skapað verðmæti saman“ og mun standa yfir í vetur með þátttöku fleiri aðila.
Fyrsti viðburðurinn verður sem fyrr segir þann 9. september kl. 13-16 í Hátíðasal Háskóla Íslands og er hann haldinn í samstarfi við Aztiq, Vísindagarða Háskóla Íslands og Sænsk-íslenska viðskiptaráðið. Hann ber yfirskriftina „Líftækni: Mikilvægi tengsla rannsókna og atvinnulífs“ og eins og nafnið bendir til verður áherslan á rannsóknir og þróun líftæknilyfja ásamt þeim tækifærum og ávinningi sem liggur í nánu samstarfi vísindasamfélagsins og atvinnulífsins. Til máls tekur fjölbreyttur hópur innlendra og erlendra fræðimanna og frumkvöðla sem eiga það sameiginlegt að vera í fremstu röð í heiminum á sviði líftækni og vísindarannsókna.
Fjöldi gesta í sal er takmarkaður vegna sóttvarna en viðburðurinn verður í beinu streymi.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Samstarf Háskóla Íslands og Alvotech
Háskóli Íslands, Vísindagarðar skólans og Alvotech hafa átt í samstarfi frá árinu 2018 með það að markmiði að efla nýsköpun á sviði líftækni og styðja betur við grunnrannsóknir með áherslu á að mennta fleiri vísindamenn hér á landi. Á þessum árum hefur skapast þverfaglegt samstarf í kennslu, rannsóknum og nýsköpun sem hefur lagt grunn að uppbyggingu á nýjum atvinnugeira sem hefur mikla þýðingu, bæði efnahagslega og samfélagslega, fyrir Ísland. Hátæknisetur Alvotech í Vatnsmýri hýsir þessa uppbyggingu en setrið er jafnframt hluti af Vísindagörðum Háskóla Íslands. Líftæknilyf eru bylting í lyfjaþróun og eru lyf framtíðarinnar. Þau hafa gjörbylt meðferð gigtarsjúkdóma, krabbameins, Alzheimerssjúkdómsins og fleiri sjúkdóma.