Hafa víðerni virði?
Hvað eru víðerni? Af hverju skipta þau máli? Hversu mikilvæg eru íslensk víðerni í alþjóðlegu samhengi? Hvert er viðhorf ferðamanna og ferðaþjónustuaðila til víðerna?
Þessum spurningum og mörgum fleirum verður varpað fram á heils dags ráðstefnu um víðerni sem haldin verður í Norræna húsinu föstudaginn 25. mars. Málþinginu er ætlað að vera umræðugrundvöllur um víðerni út frá ólíkum sjónarmiðum en fyrir liggur að kortleggja þurfi víðerni Íslands í ljósi breytinga á náttúruverndarlögum. Í framhaldi þarf að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til að vernda sérstaklega tiltekin svæði á Íslandi sem óbyggð víðerni. Í því samhengi má t.d. nefna ítarlega endurskoðun á stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs og hvaða gildi óbyggð víðerni eigi að hafa í rammaáætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
„Umræða um gildi víðerna og breið sátt um fyrir hvað þau standa er mjög mikilvægur þáttur í aðlögun að loftslagsbreytingum og vernd vistkerfa og lífríkis. Einnig er mikilvægt að ræða gildi víðerna fyrir komandi kynslóða og rétt þeirra til að njóta einveru og kyrrðar án truflunar,“ segir Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands.
Málþingið er haldið af Stofnun Sæmundar Fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð. „Við stöndum á tímamótum. Loftslagsbreytingar og tap á líffræðilegri fjölbreytni knýja mannkynið til víðtækra breytinga í átt að sjálfbærum lífsháttum. Umræða um gildi víðerna og breið sátt um fyrir hvað þau standa er mjög mikilvægur þáttur í aðlögun að loftslagsbreytingum og vernd vistkerfa og lífríkis. Einnig er mikilvægt að ræða gildi víðerna fyrir komandi kynslóða og rétt þeirra til að njóta einveru og kyrrðar án truflunar. Málþing sem þetta er því mjög gott tækifæri til að ræða ólík sjónarhorn og viðhorf“, segir Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða.
Málþingið verður haldið í Norræna húsinu 25. mars frá kl. 10-16 en verður einnig í beinu streymi. Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.