Líftækni á Íslandi – Hvert stefnum við?
Kjötrækt úr stofnfrumum og ný lyf við langvinnum lungnasjúkdómum eru meðal þess sem verða til umfjöllunar á þriðja fundi Alvotech og Háskóla Íslands í fyrirlestraröðinni „Framtíð nýsköpunar“ miðvikudaginn 27. apríl kl. 14-16 í Hátíðasal Háskóla Íslands. Viðburðurinn er öllum opinn en hann verður einnig sendur út í streymi.
Fundurinn ber yfirskriftina „Líftækni á Íslandi – Hvert stefnum við?“ Að þessu sinni verður sjónum beint að framtíð líftækni á Íslandi, en líftækniiðnaðurinn hefur vaxið ört á undanförnum áratugum. Mikil uppbygging hefur átt sér stað og dýrmæt þekking skapast með öflugu samstarfi vísindasamfélags og atvinnulífs. Í þessum þriðja viðburði í fundarröðinni verður rýnt í framtíð nýsköpunar í líftækni á Íslandi.
Opnunarávarp flytur:
- Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands
Erindi flytja:
- Kristín Björk Eiríksdóttir, deildarstjóri á lyfjavísindasviði hjá Alvotech – „Níu ár – og hvað svo?“
- Björn Örvar, vísindastjóri hjá ORF Líftækni – „Er líftæknin á leið í kjötrækt?“
- Friðrik Garðarsson, stofnandi og nýsköpunarstjóri EpiEndo Pharmaceuticals – „Kringumstæður til vaxtar og viðgangs nýsköpunarfyrirtækja í líftækni og lyfjaþróun á Íslandi og tækifæri þeirra til alþjóðasóknar“
- Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland – „Frumkvöðlar og frumútboð: Skráningar lyfja- og líftæknifyrirtækja á Norðurlöndunum“
Fundarstjóri er Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech.
Að loknum erindum fara fram pallborðsumræður.
Viðburðurinn fer fram á íslensku.