Læknanemi við HÍ hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
Valdimar Sveinsson, læknanemi við Háskóla Íslands, hlaut í dag Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands en hann tók við þeim úr hendi Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fjögur önnur nýsköpunarverkefni, sem nemendur við HÍ unnu, voru einnig tilnefnd til verðlaunanna.
Nýsköpunarverðlaunin, sem eru nærri þriggja áratuga gömul, eru árlega veitt námsmanni eða námsmönnum fyrir framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkir hvert sumar. Alls fengu hátt í 100 verkefni styrk í fyrrasumar og af þeim voru 6 verkefni valin sem öndvegisverkefni og þar með tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.
Verkefni Valdimars ber heitið Lífupplýsingafræðileg greining á kælisvari frumna. Tímabundinn súrefnisskortur í heila getur valdið langvarandi taugaskaða. Marksækin hitastýring (e. targeted temperature management) er inngrip sem felst í því að lækka líkamshitastig sjúklinga niður í væga ofkælingu (32-35°C) til að vernda heilann eftir súrefnisskort. Væg ofkæling virkjar taugaverndandi viðbragð í heilanum og gerir hann þannig þolnari fyrir súrefnisskorti. Vandamálið við marksækna hitastýringu er að hún hefur í för með sér alvarlegar aukaverkanir. Markmið verkefnisins var að kortleggja þætti sem gegna lykilhlutverki í væga ofkælingarviðbragðinu svo unnt verði að virkja viðbragðið með lyfjum í stað ofkælingar.
Í dag hafa fimm þættir verið staðfestir sem hlutar af væga ofkælingaviðbragðinu og hafa aðstandendur verkefnisins uppgötvað eitt lyf sem virðist virkja ferilinn en verkunarhátturinn er óljós. Í verkefninu var þróuð lífupplýsingafræðileg greining sem nýtir opinber RNA-raðgreiningargögn frá alþjóðlegum gagnasöfnum. Greiningaraðferðin getur nýst til að svara ýmsum öðrum spurningum með því að nýta fyrirliggjandi rannsóknargögn og spara þannig bæði tíma og kostnað áður en lengra er haldið í frekari tilraunum. Með þessu móti má flýta uppgötvunum og draga úr þörf fyrir dýrarannsóknir.
Niðurstöður eru afar lofandi og benda til þess að þættir sem miðla svokölluðum m6A-breytingum á mRNA-umritum gegni lykilhlutverki í stjórnun kælisvarsins en þessu hefur ekki verið lýst áður. Það sem meira er, lyf sem áður fannst í lyfjaskimun, virðist virkja þetta sama svar. Rannsóknir virðast styðja að verkunarháttur lyfsins gæti grundvallast á m6A-breytingum. Þessar niðurstöður opna því á möguleikann að færa þetta lyf í dýratilraunir og síðan í klínískar prófanir á mönnum.
Verkefnið vann Valdimar undir leiðsögn Kimberley Anderson rannsóknarstofustjóra og Hans Tómasar Björnssonar, prófessors við Læknadeild.
Auk verkefnis Valdimars voru fimm önnur nýsköpunarverkefni tilnefnd, þar af fjögur vegum nemenda HÍ. Þau eru:
Eins og í sögu sem snerist um að kenna íslensku og auka orðaforða með skapandi aðferðum, aðallega í gegnum ritun og frásögn, og hvetja nýja Íslendinga til þess að láta rödd sína hljóma á íslensku. Verkefnið unnu Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir, nemar í ritlist, undir leiðsögn Rúnars Helga Vignissonar, prófessor í ritlist.
Fataframleiðsla framtíðar sem snerist um að þróa nýja aðferð við fataframleiðslu, nánar tiltekið nýtt vistvænt textílefni úr náttúrulegu fljótandi gelatínefni sem hefur fullnýtingu að leiðarljósi og dregur úr efnissóun. Verkefnið vann Íris Lind Magnúsdóttir, nemi í lyfjafræði við Háskóla Íslands. Valdís Steinarsdóttir hönnuður var umsjónarmaður verkefnisins ásamt Má Másyni, prófessor í lyfjafræði, og Vivien Nagy, doktor frá Háskóla Íslands, sem eru stofnendur fyrirtæksins Minamo ehf.
Íslandssaga skynfæra: Sjálfsbókmenntir á Íslandi sem snerist um bókaskrif um skynjun Íslendinga á hinni löngu 19. öld og hvernig þeir beittu skynfærum sínum í daglegu lífi, með sérstaka áherslu á lykt. Bókin er á sviði sögu tilfinninganna (e. history of emotions) sem hefur lítið verið sinnt hér á landi. Verkefnið vann Ragnhildur Björt Björnsdóttir, BA-nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands, undir leiðsögn Sigurðar Gylfa Magnússonar, prófessors í menningarsögu.
Þarahrat sem snýst um að þróa ný, staðbundin og niðurbrjótanleg efni úr lífrænum úrgangi frá fyrirtækinu Algalíf sem ræktar smáþörunga fyrir framleiðslu á bætiefninu Astaxantín. Fjölbreytt efni og aðferðir hafa verið þróuð, eins og eldfast samsett efni og flísar, en í tilraunaferlinu hafa fleiri nýtingarmöguleikar bæst við sem verið er að kanna betur. Verkefnið unnu Sólrún Arnarsdóttir, MA-nemi í Sustainable Cities við Norman Foster Institute í London og Universidad Autonoma de Madrid, og Ísafold Kristín Halldórsdóttir, efnaverkfræðinemi við Háskóla Íslands. Leiðbeinandi er Jan Eric Jessen hjá Algalíf.