Ársfundur Háskóla Íslands 2. júní
Ársfundur Háskóla Íslands 2023 verður haldinn í Hátíðasal í Aðalbyggingu föstudaginn 2. júní kl. 13–14, undir yfirskriftinni „Opinn og alþjóðlegur“. Þar verður farið yfir starf og stefnu skólans á árinu 2022, fjallað um aðgerðir sem miða að því að gera skólann opnari og alþjóðlegri auk þess sem ársfundarverðlaun verða veitt einstaklingi eða hóp fyrir frumkvæði og forystu í starfi.
Öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Fundinum verður einnig streymt.
Dagskrá
Ávarp háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra – Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Starf og stefna Háskóla Íslands – Jón Atli Benediktsson, rektor
Háskóli Íslands – opinn og alþjóðlegur – Unnur Þorsteinsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, og Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor
Frumkvæði og forysta – árleg verðlaun Háskóla Íslands
Fundarstjóri: Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda.