Auglýst eftir hugmyndum fyrir Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ
Háskóli Íslands leitar nú að nýstárlegum og hagnýtanlegum hugmyndum fyrir samfélag eða atvinnulíf meðal nemenda og starfsfólks skólans fyrir hin árlegu Vísinda- og nýsköpunarverðlaun skólans. Fólk af öllum fræðasviðum eru hvatt til að taka þátt í samkeppninni en verðlaun fyrir fyrsta sætið nema allt að tveimur og hálfri milljón króna. Skilafrestur hugmynda er 12. apríl.
Samkeppnin hefur verið haldin innan skólans í rúmlega aldarfjórðung en markmið hennar er að laða fram nýsköpunarhugmyndir sem kunna að stuðla að samfélagslegum eða viðskiptalegum ávinningi án tillits til þess hvort hugmyndin hafi fjárhagslegan hagnað að markmiði.
Veitt eru verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í fjórum flokkum:
- Heilsa og heilbrigði – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
- Tækni og framfarir – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
- Samfélag – Verðlaunafé 1,5 m.kr.
- Hvatningarverðlaun – Verðlaunafé 500 þ.kr.
Sigurvegari samkeppninnar, sem kemur úr hópi verðlaunahafa í flokkunum fjórum, hlýtur til viðbótar 1 m.kr. í verðlaunafé.
Við mat á hugmyndum skoðar dómnefndin einkum nýnæmi og frumleika, útfærslu, samfélagsleg áhrif, m.a. út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og hvort verkefnið sé í samræmi við stefnu skólans og styðji við starfsemi hans.
Frekari upplýsingar um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ má finna á vefsíðu samkeppninnar.