Aurora með málstofur um alþjóðavæðingu
Aurora-samstarfið skapar lifandi vettvang fyrir nemendur og starfsfólk Aurora-háskólanna til að skiptast á hugmyndum um leiðir til að auka gæði náms, rannsókna og starfsemi háskólanna og auka samfélagsleg áhrif þeirra.
Alþjóðavæðing, alþjóðlegt samstarf og nemenda- og starfsmannaskipti skipa stóran sess í samstarfinu. Frá mars og fram í júní býður Aurora þeim sem starfa í alþjóðamálum háskólanna og öðrum áhugasömum upp á málstofu fyrsta þriðjudag hvers mánaðar þar sem fjallað verður um málefni tengd alþjóðavæðingu. Dagskrána og hlekk til að sækja málstofurnar má sjá hér að neðan en vakin er athygli á að tímasetningar eru gefnar upp á evrópskum tíma – CET.
Fyrsta málstofan fer fram þriðjudaginn 1. mars frá 12-13 á íslenskum tíma. Þar mun meðal annars Marina Casals Sala, stjórnandi alþjóðasksrifstofu University of Rovira i Virgili og sérfræðingur í alþjóðavæðingu háskóla, fjalla um reynslu sína af SUCTI (Systemic University Change Towards Internationalisation) verkefninu.
Nanna Teitsdóttir, verkefnisstjóri á Alþjóðasviði Háskóla Íslands, mun einnig flytja erindi á málstofu sem fjallar um notkun samfélagsmiðla til að virkja nemendur til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. Nanna er meðal þeirra fjölmörgu starfsmanna HÍ sem taka virkan þátt í verkefnum og vinnuhópum innan Aurora. Aðspurð segir hún mörg spennandi verkefni í gangi sem munu greiða götu nemenda að fleiri tækifærum til alþjóðlegrar reynslu í námi sínu og einfalda umsóknarferli og stjórnsýslu fyrir bæði nemendur og starfsfólk.
„Eitt af höfuðmarkmiðum Aurora er að auka hreyfanleika nemenda og starfsfólks milli háskólanna til að stunda nám, þjálfun, kennslu og rannsóknir sem og stuðla að fjölbreyttu og réttlátu nemendasamfélagi,“ segir Nanna Teitsdóttir, verkefnisstjóri á Alþjóðasviði, sem tekur þátt í vinnuhópi Aurora sem fjallar sérstaklega um nemendaskipti og mat á einingum eftir námsdvöl erlendis.
„Eitt af höfuðmarkmiðum Aurora er að auka hreyfanleika nemenda og starfsfólks milli háskólanna til að stunda nám, þjálfun, kennslu og rannsóknir sem og stuðla að fjölbreyttu og réttlátu nemendasamfélagi. Ég tek þátt í vinnuhópi sem fjallar sérstaklega um nemendaskipti og mat á einingum eftir námsdvöl erlendis. Við höfum meðal annars þróað marghliða samstarfssamning um nemenda- og starfsmannaskipti milli allra Aurora-háskólanna sem nú hefur tekið gildi og skrifuðum skýrslu þar sem greindar eru hindranir innan Aurora við mat á einingum milli háskólanna og hugsanlegar umbætur til að einfalda þá ferla. Einnig erum við að kanna hvernig best er að gæta að inngildingu (e. inclusion) í okkar samstarfi svo að sem flestir nemendur öðlist tækifæri til alþjóðlegrar reynslu óháð aðstæðum.“
Á sama tíma og kerfisbundnum hindrunum er smám saman ýtt úr vegi og ný tækifæri til að taka hluta af námi sínu erlendis eru innleidd segir Nanna að miðlun upplýsinga til nemenda sé lykilatriði til að fleiri nýti sér þau tækifæri sem Aurora og aðrir samstarfsskólar HÍ bjóða upp á.
„Ég vil vekja athygli á þeim leiðum sem Alþjóðasvið hefur farið til að hvetja nemendur HÍ til að afla sér alþjóðlegrar reynslu og þekkingar. Skiptinám og starfsnám erlendis þarf að vera áþreifanlegt og aðgengilegt og í gegnum samfélagsmiðla eru mikil sóknarfæri til að veita innsýn inn í daglegt líf nemenda sem dvelja erlendis. Um leið er hægt að gefa nemendum kost á því að spyrja aðra nemendur beint um upplifun þeirra af skiptinámsferlinu og dvölinni sjálfri. Rannsóknir sýna einmitt að áhrifaríkasta leiðin til að kynna námsdvöl erlendis fyrir nemendum er í gegnum samnemendur þeirra.“