AWE-konur til Akureyrar
Nýverið lögðu þátttakendur í AWE-nýsköpunarhraðlinum land undir fót til þess að taka þátt í staðlotu á Akureyri. Þar fengu þær fjölbreytta fræðslu sem snertir þróun viðskiptahugmynda sinna og gafst jafnframt tækifæri til þess að treysta tenglanetið og bera saman bækur sínar.
AWE-hraðalinn er sérstaklega ætlaður konum en að honum standa Háskóli Íslands í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi. Markmið hans er að styðja konur í að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og auka hlut kvenna almennt innan nýsköpunargeirans.
Hraðlinum var ýtt af stað í annað sinn í síðasta mánuði og í heild taka um 50 konur með 37 viðskiptahugmyndir í þátt í honum að þessu sinni. Hraðalinn fer að mestu leyti fram á netinu en það er gert til þess að auðvelda konum alls staðar af landinu að vera með.
Þó er boðið upp á nokkrar staðlotur og um 30 frumkvöðlar víðs vegar af landinu tóku þátt í lotu sem fór fram á Akureyri á dögunum. Staðlotan var haldin í Háskólanum á Akureyri þar sem Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, tók á móti hópnum. Einnig fór dr. Sigrún Stefánsdóttir, sérfræðingur í fjölmiðlun, yfir kynningu viðskiptahugmynda og framkomu og þá skemmti Vilhjálmur B. Bragason vandræðaskáld konunum í lok fyrri dags.
Á síðari degi staðlotunnar var farið yfir hvernig ætti að setja saman lyfturæðu (e. pitch) og fengu þátttakendur ábendingar frá reyndum konum úr frumkvöðlaumhverfinu, þ.e. þeim Örnu Björg Bjarnadóttur og Rebekku Kristín Garðasdóttir frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, og Fjólu Björk Karlsdóttur aðjunkt og Kristínu Margréti Jóhannesdóttir lektor, sem báðar starfa hjá Háskólanum á Akureyri. Þá fengu konurnar leiðsögn í gerð lyfturæðumyndbanda frá Kristínu Ásu Einarsdóttur frá Háskóla Íslands.
Fréttastofa RÚV fjallaði um hraðalinn og staðlotuna á Akureyri
Hér að neðan má sjá myndir frá hraðlinum