Skip to main content
14. febrúar 2022

AWE-nýsköpunarhraðall HÍ fyrir konur er hafinn  

AWE-nýsköpunarhraðall HÍ fyrir konur er hafinn   - á vefsíðu Háskóla Íslands

Um það bil 50 konur komu saman fimmtudaginn 10. febrúar þegar AWE-nýsköpunarhraðli Háskóla Íslands og bandaríska sendiráðsins var formlega hleypt af stokkunum í Grósku í Vatnsmýri.  
 
Alls voru 37 viðskiptahugmyndir kvenna valdar til að taka þátt í hraðlinum að þessu sinni en samtals bárust 114 umsóknir frá 147 konum í keppnina. 
 
Þetta var í fyrsta sinn sem þátttakendur hittust og augljóst að mikill kraftur býr hópnum. Konurnar komu víða af landinu til að efla tengslanetið, bera saman bækur sínar og hlusta á fyrirlestur um markaðsmál frá Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Tulipop.  
 
Næstu vikur munu konurnar svo hittast reglulega, ýmist í raunheimum eða á netinu, þar sem mentorarnir, Fida Abu Libdeh, forstjóri og annar stofnenda GeoSilica, Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, framkvæmdastjóri Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands, og Hólmfríður Sveinsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Mergur Ráðgjöf, leiða hópinn áfram í frekari þróun viðskiptahugmynda sinna, en allar þrjár hafa mikla reynslu innan frumkvöðla- og nýsköpunargeirans.  
 
Að auki munu þátttakendur fá fræðslu frá öflugum og reyndum hópi sérfræðinga úr háskólasamfélaginu, atvinnulífi og nýsköpunargeiranum, allt í því augnamiði að hjálpa þátttakendum að koma viðskiptahugmynd sinni á laggirnar. Þátttakendur sækja einnig netnámskeiðið Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Managament við Ríkisháskólann í Arizona.   

Nýsköpunarhraðallinn er haldinn undir merkjum Academy for Woman Entrepreneurs (AWE) í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi. Aðrir samstarfsaðilar eru Félag kvenna í atvinnulífinu og Samtök kvenna af erlendum uppruna.  AWE-verkefnið er í boði í yfir 50 löndum víða um heim á vegum bandarískra stjórnvalda en Ísland er fyrst norrænu ríkjanna til að taka þátt í því.  
 
Aðstandendur AWE-hraðilsins vilja nota tækifærið og þakka Frumkvöðlasetrinu í Grósku innilega fyrir að ljá aðstöðuna fyrir fyrstu lotuna. 

Fleiri myndir frá fyrstu vinnulotunni

Þátttakendur, mentorar og skipuleggjendur AWE-hraðalsins