Skip to main content
14. febrúar 2022

Fjögur sóttu um starf forseta Heilbrigðisvísindasviðs

Fjögur sóttu um starf forseta Heilbrigðisvísindasviðs - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fjórar umsóknir bárust um starf forseta Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands sem var nýverið auglýst laust til umsóknar en umsóknarfrestur rann út 10. febrúar sl.

Þau sem sóttu um starfið eru: 

Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor

Reynir Arngrímsson prófessor

Sigurður Óli Sigurðsson framkvæmdastjóri

Unnur Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri

Forseti Heilbrigðisvísindasviðs er ráðinn af rektor til fimm ára frá 1. júlí 2022. Hann starfar í umboði rektors, er yfirmaður fræðasviðsins, stýrir daglegri starfsemi og er akademískur leiðtogi þess. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skipar rektor sérstaka nefnd til að undirbúa ákvörðun um ráðningu forseta fræðasviðs og tekur nefndin til starfa á næstu dögum.