Fræðafólk við Hugvísindasvið tilnefnt til viðurkenningar Hagþenkis
Fjórar bækur eftir fræðafólk við Hugvísindasvið Háskóla Íslands hafa verið tilnefndar til viðurkenningar Hagþenkis fyrir samningu fræðirita, kennslugagna eða aðra miðlun fræðilegs efnis eða rannsóknir á liðnu ári. Þetta eru bækurnar Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809–1871 eftir Erlu Huldu Halldórsdóttur, prófessor í sagnfræði, Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi í ritstjórn Guðmundar Jónssonar, prófessors í sagnfræði, Fingraför spekinnar. Kaflar úr sögu íslenskrar heimspeki á miðöldum eftir Gunnar Harðarson, prófessor emeritus í heimspeki, og Nú blakta rauðir fánar. Saga kommúnista- og sósíalistahreyfingarinnar á Íslandi 1918–1968 eftir Skafta Ingimarsson, nýdoktor við Sagnfræðistofnun HÍ.
Gunnar Þór Bjarnason, formaður Hagþenkis, kynnti tilnefningarnar í Borgarbókasafninu í Grófinni að viðstöddum tilnefndum höfundum og gestum þeirra, stjórn Hagþenkis og viðurkenningarráðinu. Ráðið skipa þau Halldóra Jónsdóttir, Kristján Leósson, Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, Unnur Þóra Jökulsdóttir og Vilhjálmur Árnason og Friðbjörg Ingimarsdóttir er verkefnastýra þess. Eftirfarandi eru umsagnir ráðsins um bækurnar:
- Strá fyrir straumi: Áhrifarík ævisaga sem varpar nýju ljósi á 19. öldina og veitir einstaka innsýn í heim kvenna. Byggir á ómetanlegum bréfum Sigríðar til bróður síns sem spanna hálfa öld.
- Ástand Íslands um 1700: Yfirgripsmikið verk sem er afrakstur margra ára rannsókna á lífsháttum á Íslandi við upphaf 18. aldar. Unnið er á nýstárlegan, þverfaglegan hátt úr frumheimildum sem eru einstæðar á alþjóðavísu.
- Fingraför spekinnar: Vandað og vel skrifað ritgerðasafn sem varpar nýju ljósi á heimspekilega hugsun í íslenskum fornritum. Hugmyndir, hugtök og rökfærslur eru skýrð í ljósi heimspeki miðalda.
- Nú blakta rauðir fánar: Mikilvægt innlegg í íslenska stjórnmálasögu tuttugustu aldarinnar. Verkið veitir nýja innsýn í þátttöku almennings í flokksstarfi og verkalýðsbaráttu um land allt.
Höfundar tilnefndra bóka munu kynna bækurnar og eigið verklag í fyrirlestrum í Borgarbókasafninu í Grófinni, laugardaginn 1. febrúar kl. 13:00-15:00. Viðurkenning Hagþenkis verður síðan veitt í Þjóðabókhlöðunni í lok febrúar við hátíðlega athöfn og hlýtur verðlaunahafi 1.500.000 kr. Nánar á vefsíðu Hagþenkis.