Skip to main content
1. desember 2023

Hátíð sjálfbærni í HÍ í beinu streymi

Hátíð sjálfbærni í HÍ í beinu streymi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sjálfbærniskýrsla Háskóla Íslands fyrir árið 2022 er nú aðgengileg. Sjálfbærniskýrslan var unnin af Sjálfbærnistofnun HÍ að beiðni sjálfbærninefndar skólans. Sjálfbærnistofnun heldur Hátíð sjálfbærni þann 6. desember kl. 14 þar sem útgáfu nýrrar sjálfbærniskýrslu verður meðal annars fagnað.

Þetta er í annað skipti sem HÍ gefur út slíka skýrslu og undirstrikar útgáfa hennar áherslur háskólans í að vera leiðandi á sviði sjálfbærni, en háskólastofnanir leika lykilhlutverk í að leiða samfélagsbreytingar á því sviði. HÍ hefur þess vegna innleitt heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í stefnu sína fyrir 2021–2026, HÍ26, þar sem sjálfbærni og fjölbreytileiki er ein af grunnstoðum stefnunnar.

Sjálfbærniskýrslan veitir innsýn í þau fjölmörgu verkefni sem unnin eru í HÍ og tengjast heimsmarkmiðunum. Tilgangur hennar er að stuðla að áframhaldandi vinnu við sjálfbærni innan HÍ, gera góðan háskóla enn betri þegar kemur að því að takast á við hnattrænar áskoranir og skapa sjálfbærari framtíð. 

Þar að auki er vaxandi krafa gerð til háskóla á alþjóðavísu að gera grein fyrir, með mælanlegum hætti, hvernig starf skólans styður við sjálfbærni og eru úttektir á þessu meðal annars notaðar við röðun háskóla á alþjóðlegum matslistum. Þess má geta að gögn úr fyrstu sjálfbærniskýrslu skólans, sem gefin var út í fyrra, urðu til þess að HÍ hækkaði umtalsvert á lista Times Higher Education yfir þá háskóla sem hafa mest samfélagsleg áhrif.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar frá síðustu skýrslu. Tekin voru viðtöl við starfsfólk og nemendur háskólans sem vinna að verkefnum sem tengjast heimsmarkmiðunum með einum eða öðrum hætti. Þetta var gert til að veita betri innsýn í viðamikið starf skólans á sviði allra heimsmarkmiða. Auk þess er þar að finna ávörp frá forsetum allra fimm fræðasviða skólans þar sem þeir greina frá starfsemi á sínu sviði sem tengist sjálfbærni. Forseti Stúdentaráðs HÍ er einnig með ávarp í skýrslunni en stúdentar hafa mikilvæga rödd, bæði innan og utan HÍ, þegar kemur að sjálfbærni og framvindu heimsmarkmiðanna. Loks greinir ný skýrsla frá stöðu þeirra tillagna til úrbóta sem lagðar voru fram í síðustu skýrslu. 

Sjálfbærniskýrslan var unnin af Sjálfbærnistofnun HÍ að beiðni sjálfbærninefndar skólans. Sjálfbærnistofnun heldur Hátíð sjálfbærni þann 6. desember þar sem útgáfu nýrrar sjálfbærniskýrslu verður meðal annars fagnað.

Skýrsluna í heild sinni má nú finna á vef HÍ
 

Maður á göngu í gróðri