HÍ brautskráir 455 kandídata á laugardag
Háskóli Íslands brautskráir 455 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi laugardaginn 19. febrúar. Engin formleg brautskráningarathöfn er á dagskrá vegna samfélagsástandsins en brautskráningarkandídötum býðst að sækja prófskírteini sitt í Háskólabíó þennan dag þar sem hátíðarstemning mun svífa yfir vötnum.
Afhendingu prófskírteina á laugardag verður skipt upp eftir fræðasviðum. Nemendur í deildum Hugvísindasviðs ríða á vaðið kl. 10-11, deildir Heilbrigðisvísindasviðs og Verkfræði- og náttúruvísindasviðs koma þar á eftir kl. 11-12, nemendur úr deildum Menntavísindasviðs kl. 12-13 og loks verða prófskírteini frá deildum Félagsvísindasviðs afhent kl. 13-14. Kandídatar hafa þegar fengið sendar frekari upplýsingar og leiðbeiningar í tölvupósti.
Ávarp rektors við brautskráningu kandídata
Brautskráð er úr öllum 26 deildum skólans og ljúka 190 kandídatar grunnnámi en 265 framhaldsnámi. Frá Félagsvísindasviði skólans brautskrást 176 kandídatar, 53 frá Heilbrigðisvísindasviði, 70 frá Hugvísindasviði, 96 frá Menntavísindasviði og 60 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði.
Við afhendingu prófskírteina verður sóttvarnaviðmiðum fylgt í hvívetna og eru kandídatar hvattir til að bera andlitsgrímur þegar þeir koma í Háskólabíó. Grímur og sótthreinsispritt verður einnig á staðnum fyrir þau sem það vilja.
Starfsfólk verður á staðnum og veitir frekari leiðbeiningar.