Skip to main content
7. júní 2022

HÍ með enskunámskeið fyrir flóttafólk á leið í háskóla

HÍ með enskunámskeið fyrir flóttafólk á leið í háskóla - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands mun í sumar bjóða upp á enskunámskeið fyrir flóttafólk sem hyggst hefja háskólanám á Íslandi. Námskeiðið, sem er ókeypis, er hluti af viðbrögðum skólans við innrás Rússa í Úkraínu.

Um er að ræða átta vikna námskeið í tveimur lotum sem er hugsað fyrir fólk með framhaldsskólapróf eða háskólamenntun og stefnir á frekara nám. Fyrri lotan verður frá 14. júní til 7. júlí en sú seinni frá 21. júlí til 16. ágúst. Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 14 og 15.30.

Endurmenntun Háskóla Íslands heldur utan um námskeiðið og fer skráning fram á vef stofnunarinnar. Kennsla verður í höndum Jónu Guðrúnar Guðmundsdóttur and Súsönnu Bjargar Vilhjálmsdóttur, kennara við HÍ.

Opið er fyrir skráningar í námskeiðið til 9. júní.

Háskóli Íslands hefur gripið til ýmissa aðgerða til þess að bregðast við ástandinu í Úkraínu. Skólinn hefur m.a. komið á fót sérstökum viðbragðshópi sem ætlað er að samræma viðbrögð skólans og miðla upplýsingum þann stuðning sem skólinn veitir.

Skólinn hefur m.a. veitt Útlendingastofnun endurgjaldslausan aðgang að 75 herbergjum á Sögu fyrir flóttamenn og hafa þau verið fullnýtt. Þá hefur skólinn boðið nemendum og starfsfólki með úkraínskt og rússneskt ríkisfang sálfélagslegan stuðning auk þess sem fjarnemar við úkraínska háskóla geta fengið aðstöðu á háskólasvæðinu, aðgang að neti og aðstöðu til að sinna námi sínu.

Enn fremur hefur verið rætt um að koma á fót tímabundnu fræðimannnasetri við Háskóla Íslands til þess að styðja við landflótta kennara og fræðafólk frá Úkraínu. Þá brást skólinn ásamt öðrum háskólum innan Aurora-samstarfsnetsins við beiðni frá úkraínska samstarfsskólanum Karazin University um stuðning til skólans til uppbyggingar upplýsingatækni.

Háskóli Íslands hefur enn fremur komið á fót upplýsingasíðu, bæði á íslensku og ensku, fyrir það fólk sem flúið hefur frá Úkraínu, en þar er að finna upplýsingar um aðgerðir og afstöðu skólans.

""