Skip to main content
28. september 2022

Hvernig tryggjum við hagsæld án þess að skaða vistkerfi heims?

Hvernig tryggjum við hagsæld án þess að skaða vistkerfi heims? - á vefsíðu Háskóla Íslands

Jon D. Erickson, höfundur bókarinnar „The Progress Illusion – Reclaiming Our Future from the Fairytale of Economics“ og Emmy-verðlaunahafi, ræðir um undirliggjandi og alvarlega galla í hagfræðilegri nálgun í gegnum tíðina, sem hafa mótað bæði hagkerfi og samfélög okkar með skaðlegum hætti í erindi sem fram fer í stofu 101 í Odda fimmtudaginn 29. september kl. 15. Viðburðurinn er haldinn af þverfræðilegu framhaldsnámi í umhverfis- og auðlindafræði og Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands.

Í erindinu varpar Erickson jafnframt ljósi á það hvað sé til ráða til að við getum mætt framtíðinni með betri hugsjónir að leiðarljósi? Hvernig getum við tryggt áframhaldandi hagsæld og félagslega velferð án þess að skaða náttúru og vistkerfi heimsins?

Jon D. Erickson er prófessor í visthagfræði og sjálfbærni við Háskólann í Vermont í Bandaríkjunum. Hann er afkastamikill höfundur fræðigreina og bóka auk þess sem hann hefur unnið til Emmy-verðlauna á sviði heimildamyndagerðar. Hann er gestaprófessor við Háskóla Íslands og hefur kennt námskeið í visthagfræði í framhaldsnámi í umhverfis- og auðlindafræði síðastliðin tíu ár. Sérsvið Ericksons er vistfræðileg hagfræði sem hefur stundum verið kölluð hagfræði sjálfbærrar þróunar.

Katrín Oddsdóttir stýrir umræðum og samtali við Erickson um bókina og mögulegar samfélagslegar lausnir.

 

Jon D. Erickson og kápa bókarinnar