Skip to main content
7. júní 2022

Kosið í háskólaráð og nýtt upplýsingakerfi rannsókna kynnt á háskólaþingi

Kosið í háskólaráð og nýtt upplýsingakerfi rannsókna kynnt á háskólaþingi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þróun doktorsnáms, nýtt upplýsingakerfi rannsókna, kosning fulltrúa háskólasamfélagsins í háskólaráð og árangur og áframhaldandi sókn skólans samkvæmt stefnu hans, HÍ26, verður til umfjöllunar á háskólaþingi sem fram fer í Hátíðasal Aðalbyggingar þriðjudaginn 8. júní kl. 13-15.30. Þingið verður sent út í streymi.

Háskólaþing er samráðsvettvangur háskólasamfélagsins þar sem fram fer umræða um þróun og eflingu Háskóla Íslands. Þingið fjallar um og tekur þátt í að móta sameiginlega stefnu Háskóla Íslands og á því eiga sæti rektor, forsetar fræðasviða, deildarforsetar og kjörnir fulltrúar fræðasviða, fulltrúar helstu stofnana háskólans og samstarfsstofnana hans, kennarafélaga og stúdenta auk fulltrúa starfsmanna stjórnsýslu og úr háskólaráði. 
Fjögur mál eru á dagskrá þingsins að þessu sinni. Fyrst fer rektor yfir þau mál sem efst eru á baugi innan Háskólans. Í framhaldinu fer fram kynning á þeim fulltrúum sem bjóða sig fram til setu í háskólaráði fyrir hönd akademísks starfsfólks skólans til næstu tveggja ára. Þrír fulltrúar auk þriggja varafulltrúa eru kjörnir í háskólaráð á fundinum og er kosningin rafræn.

Að loknum kynningum á framboðum til háskólaráðs fer Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar, yfir árangurinn af innleiðingu stefnu Háskóla Íslands fyrir árin 2021-2026, sem nefnist HÍ26, og þau verkefni sem fram undan eru og tengjast innleiðingunni. 

Að loknu kaffihléi er komið að Guðbjörgu Lindu Rafnsdóttur, aðstoðarrektor vísinda, og Halldóri Jónssyni, sviðsstjóra vísinda- og nýsköpunarsviðs skólans, en þau kynna þróun doktorsnáms við skólann og nýtt upplýsingakerfi rannsókna sem tekið verður upp innan Háskólans á næstu vikum. 

Háskólaþingi lýkur svo á því að tilkynnt verður um niðurstöðu áðurnefndrar kosningar fulltrúa háskólasamfélagsins í háskólaráð.

Frá Háskólaþingi