Lofa lifandi og skemmtilegu námskeiði
„Í hvert skipti sem farið er yfir söguna þá myndast nýr skilningur og ný mynd teiknast upp. Það verður alveg ábyggilega þannig á þessu námskeiði auk þess sem það er mjög dýrmætt að hitta fólk úr ólíkum áttum sem sækir námskeiðið og mun leggja til þekkingu í formi umræðna um málefnið,“ segir myndlistarkonan Sigrún Hrólfsdóttir. Hún er annar tveggja kennara á námskeiðinu Íslensk myndlist í 150 ár hjá Endurmenntun Háskóla Íslands sem hefst í janúar. Um er að ræða einstakt námskeið í samstarfi við Listasafn Íslands og skiptist í alls tíu hluta og lýkur í mars. Farið verður í vettvangsferðir í Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg og í Safnahúsið við Hverfisgötu og innifalið í verði er aðgangur að Listasafni Íslands á meðan námskeiðið varir.
„Myndlistin er móðir allra sjónrænna miðla og þeir skipa æ mikilvægari sess í samfélaginu. Allur almenningur nýtur myndlistar alla daga í ólíku formi, þannig að allir vita í rauninni mjög mikið um myndlist þó svo að þeir ræði hana kannski ekki dags daglega. Ég get lofað því að þetta verður lifandi og skemmtilegt námskeið sem á eftir að gefa þeim sem sækja það nýja og vonandi ferska sýn á íslenska myndlistarsögu,“ segir Sigrún.
Sigrún Hrólfsdóttir. Mynd/aðsend
Sigrún hefur starfað sem myndlistarmaður í hátt í 30 ár og hefur mikla reynslu af myndlistinni frá hinni skapandi hlið og þekkir vel til í þessum heimi. „Ég bý líka yfir fræðilegri þekkingu í listum og heimspeki auk þess sem ég hef mikla reynslu af myndlistarkennslu á háskólastigi og hef starfað lengi við Listaháskólann. Ég hef einnig nýlokið rannsóknarverkefni við Listasafn Reykjavíkur þar sem ég skoðaði feril listakonunnar Hildar Hákonardóttur. Þetta verkefni opnaði augu mín enn frekar fyrir mikilvægi framlags kvenna í íslenskri listasögu. Og sú mynd verður dregin fram á þessu námskeiði.“
Hinn kennari námskeiðsins er Æsa Sigurjónsdóttir, dósent í listfræði við Háskóla Íslands. Æsa er margreyndur sýningarstjóri og höfundur og ritstjóri margra bóka og fræðigreina um myndlist. Hún er einnig reynslumikill kennari við Háskóla Íslands og kemur til með að gefa námskeiðinu mikla fræðilega dýpt. Hún hefur rannsakað íslenska myndlist og sett í samhengi við alþjóðlega strauma og orðræðu innan fræða um myndlist og sjónræna miðla.
Æsa Sigurjónsdóttir. MYND/Anton Brink
Munu opna augu fólks fyrir hversu áhrifamikil myndlist er
Sigrún segir námskeiðið höfða til allra sem hafa almennan áhuga á menningu á Íslandi. „Og þeirra sem starfa í menningargeiranum, söfnum eða við kennslu listgreina á öllum skólastigum. Einnig þeirra sem sjá fyrir sér að starfa á vettvangi safna eða í galleríum eða við kennslu listgreina. Svo er þetta námskeið fyrir þau sem að starfa innan myndlistar eða hönnunar og arkítektúrs en hafa kannski útskrifast úr skóla fyrir nokkrum árum - eða hafa menntað sig erlendis. Fyrir þau sem eru að hefja nám í listum eða hönnun. Fyrir þau sem eiga listaverk og vilja staðsetja þau í samhengi samtímalistarinnar. Fyrir öll sem njóta listar en vilja auka aðgang sinn að vettvangi myndlistarinnar.“
Með því að Listasafn Íslands komi að námskeiðinu telur Sigrún að það nái vel utan um þær ólíku hliðar sem listheimurinn samanstendur af. „Það verður fjallað um myndlistarsöguna frá sjónarhóli listamanns, listfræðings og safnafólks. Þannig að ég tel engan vafa á því að þetta verður mjög dýnamískt námskeið sem mun opna augu fólks fyrir því hversu fjölbreytt og áhrifamikið svið myndlistin er.“
Við minnum á gjafabréf Endurmenntunar Háskóla Íslands. Þau eru tilvalin jólagjöf og hægt að panta hér.