Metfjöldi brautskráður frá Háskóla Íslands á föstudag
Háskóli Íslands brautskráir 505 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi við hátíðlega athöfn í Háskólabíói föstudaginn 17. febrúar kl. 15 en um er að ræða metfjölda á febrúarbrautskráningu skólans.
Athöfnin verður send út í streymi
Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem skólinn er með hefðbundna brautskráningarathöfn í Háskólabíói en afar gleðilegt er að geta boðið kandídata og gesti þeirra velkomna nú eftir kórónuveirufaraldurinn. Athöfnin hefst á ávarpi Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, og í framhaldinu tekur við brautskráning nemenda af öllum fimm fræðasviðum skólans, Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði, Hugvísindasviði, Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði.
Alls mun 181 kandídat taka við brautskráningarskírteini sínu frá Félagsvísindasviði, 81 frá Heilbrigðisvísindasviði, 66 frá Hugvísindasviði, 109 frá Menntavísindasviði og 68 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Samanlagt brautskrást því 505 kandídatar að þessu sinni með 506 prófgráður og hafa aldrei verið fleiri í febrúar, sem fyrr segir.
Að lokinni brautskráningu kandídata mun Rebekka Karlsdóttir, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, flytja ávarp og Háskólakórinn syngur nokkur lög.
Kandídötum er ætlað afmarkað svæði í Háskólabíói og eru þeir beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 14.00 í Háskólabíó. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.