Ný ásýnd Endurmenntunar HÍ á stórafmælisári
Ný ásýnd Endurmenntunar Háskóla Íslands hefur litið dagsins ljós með nýju einkennismerki og litakorti á vefsíðu EHÍ og víðar. Tilefnið er meðal annars að í haust fagnar Endurmenntun 40 ára afmæli.
Nýtt einkennismerki skartar hinni grísku Pallas Aþenu sem gegndi til forna meðal annars hlutverki mennta- og viskugyðju. Mörg tengja hana við Háskóla Íslands enda er Endurmenntun HÍ hluti af þeirri rótgrónu menntastofnun og opnar þannnig öllum gátt inn í þá þekkingu sem þar er að finna. Um leið er Endurmenntun Háskóla Íslands fyrir öll. Háskólagráðu er einungis krafist á sumum námsleiðum.
Kennarar eru lykilfólk Endurmenntar og því er lögð áhersla á að vekja athygli á þeim þegar starfsemin er kynnt. Kennararnir eru vel á þriðja hundrað manns á hverju ári, fyrsta flokks fagfólk og reynsluboltar með sérþekkingu á sínum mikilvægu sviðum.
Nýir og sterkari litir verða einnig áberandi í öllu markaðsefni Endurmenntunar sem mun sjást víða í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum næstu daga og vikur.
Við hvetjum ykkur til að skoða fjölbreytta flóru námskeiða sem sjá má hér.