Skip to main content
14. janúar 2025

Ný bók um sögu handrita úr Skálholti

Ný bók um sögu handrita úr Skálholti - á vefsíðu Háskóla Íslands

Út er komin bókin Fornar Skálholtsskræður eftir Sveinbjörn Rafnsson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Í bókinni er fjallað um sögu einkum þriggja skinnhandrita, sem voru í Skálholti en eru nú í Árnasafni. Fyrst er fjallað um og gefnar út leifar af minnisbók sem Skáholtsbiskupar hafa haft meðferðis í vísistasíuferðum sínum um landið á síðari hluta 15. aldar og í upphafi hinnar 16. Næst er fjallað um handrit, sem virðist vera gömul námsbók úr prestaskóla Skálholts, þar er þýðing á íslensku úr klassískum kanónískum rétti, sem hér er gefin út. Aftast í handritinu eru ómetanlegar og einstakar heimildir til íslenskrar og norskrar sögu á 12. öld. Að lokum er fjallað um eitt merkasta lagahandrit íslenskt frá miðöldum, „Skálholtsbók hina eldri og betri“, efni hennar og uppruna.

Sveinbjörn Rafnsson er prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Eftir hann liggja fjölmargar greinar og bækur, m.a. Sögugerð Landnámabókar. Um íslenska sagnaritun á 12. og 13. öld (2001), Ólafs sögur Tryggvasonar. Um gerðir þeirra, heimildir og höfunda (2005), Af fornum lögum og sögum. Fjórar ritgerðir um forníslenska sögu (2011) og Um Snorra Eddu og Munkagaman. Drög til menningarsögu íslenskra miðalda (2016).

Út er komin bókin Fornar Skálholtsskræður eftir Sveinbjörn Rafnsson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands.