Skip to main content
5. september 2022

Nýnemadögum fagnað í HÍ í vikunni

Nýnemadögum fagnað í HÍ í vikunni - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands býður nýnema velkomna með sérstökum nýnemadögum 5.-9. september þar sem boðið er upp á skemmtilega viðburði og fræðslu um lífið og þjónustuna sem veitt er í Háskólanum.

Upplýsingaborð fyrir nýnema verður opið í nýnemavikunni frá kl. 10-14 á Háskólatorgi. Þar standa fulltrúar frá Stúdentaráði fyrir svörum og hægt að fá svör við hinum ýmsu spurningum er varða námið, skólann, húsnæði, félagslíf, þjónustu og margt fleira. 

Liður í nýnemadögum er kynning á þjónustu Háskólans og þá eru helstu þjónustustofnanir skólans með kynningarbása þar sem nemendur geta stoppað við og spjallað við starfsfólk og kynnst starfsseminni og komist að ýmsu sem í boði er innan veggja skólans. Kynningarnar eru mánudaginn 5. september kl. 11:30 - 13:00 á Háskólatorgi.

Nemendur geta til að mynda hitt starfsfólk frá Náms- og starfsráðgjöf, Alþjóðasviði, Nemendaskrá, Tungumálamiðstöð, Landsbókasafni og Smáuglunni – appi Háskóla Íslands. Á staðnum eru líka fulltrúar frá Stúdentaráði, Sjálfbærni- og umhverfismálum, Háskólakórnum og Félagsstofnun stúdenta sem rekur Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentakjallarann og fleira. Þar má einnig ná tali af jafnréttisfulltrúum og tengdum aðilum.

Spurningaleikur fyrir nýnema er í Uglunni á nýnemadögum en þar verður spurt um ýmislegt sem tengist háskólalífinu. Glæsilegir vinningar í boði, s.s. gjafabréf í Stúdentakjallarann og Bóksölu stúdenta, háskólapeysur, HÍ-húfa, kaffikort og fleira. 

Háskólaganga og grænn nýnemadagur

Nýnemum og öðrum nemendum býðst að rölta með fulltrúa nemenda við Háskóla Íslands í Háskólagöngunni. Farið verður um svæðið og litið inn í allar helstu byggingar skólans. Þú færð einnig að heyra alls kyns sögur og fróðleik um starfið í byggingunum og á háskólasvæðinu. Lagt er af stað frá upplýsingaborði fyrir nýnema á Háskólatorgi kl. 12:00 mánudaginn 5. september og kl. 12:00 þriðjudaginn 6. september. 

Grænn nýnemadagur verður haldinn þriðjudaginn 6. september. Þá verða grænar hliðar Háskólans kynntar og hvernig hægt er að lifa sem umhverfisvænstum lífsstíl innan veggja skólans. Grænfáninn verður dreginn að húni við hátíðlega athöfn og tré gróðursett á Háskólasvæðinu sem skref í átt að enn grænni háskóla. Háskóli Íslands hefur flaggað Grænfánanum frá árinu 2020 og með honum leggur Landvernd áherslu á að auka umhverfismennt, menntun til sjálfbærni og að styrkja umhverfisstefnu skóla.

Rafhlaupahjólaleigan Hopp verður með sérstakt tilboð fyrir nemendur Háskóla Íslands á Grænum nýnemadegi og verður frítt að leggja Hopp hjólum á ákveðnu svæði við Háskólatorg. Félagsstofnun Stúdenta tekur þátt í deginum með ýmsu móti. Í Hámu verður til að mynda einungis boðið upp á vegan mat, bæði heitan rétt og súpu og fjölnota kaffimál verða á sérstöku tilboði.

Tónleikar á Torginu

Háskólakórinn syngur fyrir gesti og gangandi á Háskólatorgi þriðjudaginn 6. september kl. 12.10 og kynnir starfsemi sína. Inntökuprufur í Háskólakórinn verða 6. og 7. september kl. 17.00 í Kapellunni á annarri hæð í Aðalbyggingu.  

Hljómsveitin Hin verður með rafskotna poppdúetttónleika á Háskólatorgi miðvikudaginn 7. september kl. 12.10 - 12.40. Hljómsveitin er nýleg og hana skipa þau Hilmar Árni Halldórsson og Hanna Sólbjört Ólafsdóttir sem bæði eru nemendur í Háskóla Íslands.  

Árlegt nýnemamót Stúdentaráðs verður haldið á grasfletinum framan við Aðalbyggingu fimmtudaginn 8. september og hefst um hádegisbil. Þar geta allir nemar tekið þátt í fótbolta með sínu nemendafélagi og þarf hvert lið að vera skipað 7 keppendum. Þar af þarf að vera einn nýnemi og um að gera að hafa fjölbreytni kynja í liðinu. Keppt verður 2x7 mínútur. Sigurvegarar fótboltamótsins hljóta farandbikarinn ásamt öðrum veglegum vinningum. Liðið í skemmtilegasta búningunum fær einnig glæsilega vinninga. 

Skráning hefst mánudaginn 5. september. Félagslífs- og menningarnefnd Stúdentaráðs mun búa til viðburð á Facebook og auglýsa vel til nemendafélaganna og nemendur því hvattir til að fylgjast vel með.  

Alþjóðasvið býður upp á örkynningu á skiptinámi, starfsþjálfun og sumarnámi erlendis miðvikudaginn 7. september kl. 12.00 - 12.30 í stofu 101 í Odda. Frjáls mæting og skráning óþörf. 

Við hvetjum nýnema líka til að horfa á þetta myndband þar sem farið er yfir allar helstu upplýsingar sem gott er að hafa á hreinu þegar þú hefur nám í Háskóla Íslands. 

Það er tilvalið að óska eftir aðgangi að Facebook-síðu fyrir alla nýnema Háskólans sem er óháð námsleiðum og fræðasviðum og opin öllum sem eru að hefja nám við skólann. Á síðunni geta nýir nemendur leitað upplýsinga hver hjá öðrum og átt í óformlegum samskiptum á jafningjagrundvelli. 

 Það er hægt að skoða myndband af rölti um svæðið og fræðast um staðsetningar bygginga. 

 Endilega fylgstu með Instagram-reikningi Háskólans þar sem kynnt er ýmis þjónusta, stuðningur og félagslíf sem stendur nemendum til boða. 

Nemendur á göngu í HÍ.