Skip to main content
14. september 2022

Nýskipað háskólaráð tekur til starfa

Nýskipað háskólaráð tekur til starfa - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fulltrúar í nýskipuðu háskólaráði Háskóla Íslands til næstu tveggja ára hittust á sínum fyrsta fundi fimmtudaginn 8. september. Í ráðinu eiga sæti, auk rektors, fulltrúar háskólasamfélagsins, stúdenta, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og atvinnulífs en þeir síðastnefndu eru tilnefndir af háskólaráði. 

Háskólaráð er þannig skipað frá 1. júlí 2022 til 30. júní 2024:

  • Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og rektor Háskóla Íslands, forseti ráðsins
  • Arnar Þór Másson, ráðgjafi og stjórnarformaður Marel hf., fulltrúi tilnefndur af háskólaráði
  • Brynhildur Kristín Ásgeirsdóttir, læknanemi, fulltrúi kjörinn af heildarsamtökum stúdenta
  • Davíð Þorláksson, lögfræðingur og MBA, framkvæmdastjóri Betri samgangna, fulltrúi tilnefndur af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor við Mála- og menningardeild á Hugvísindasviði, fulltrúi háskólasamfélagsins
  • Katrín Atladóttir, verkfræðingur og vörustjóri hjá Dohop, fulltrúi tilnefndur af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Katrín Björk Kristjánsdóttir, félagsráðgjafarnemi, fulltrúi kjörinn af heildarsamtökum stúdenta
  • Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, fulltrúi háskólasamfélagsins
  • Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild á Félagsvísindasviði, fulltrúi háskólasamfélagsins
  • Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Bravo Earth, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði
  • Þorvaldur Ingvarsson, bæklunarskurðlæknir og sjálfstætt starfandi sérfræðingur, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði

Varamenn:

  • Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við Lagadeild á Félagsvísindasvði, varamaður fyrir Silju Báru R. Ómarsdóttur
  • Arna Hauksdóttir, dósent við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði og Miðstöð í lýðheilsuvísindum, varamaður fyrir Hólmfríði Garðarsdóttur
  • Daníel Þór Ólason, prófessor við Sálfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði, varamaður fyrir Ólaf Pétur Pálsson
  • Guðvarður Már Gunnlaugsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, varamaður fyrir Arnar Þór Másson, Vilborgu Einarsdóttur og Þorvald Ingvarsson
  • Ingvar Þóroddsson verkfræðinemi, varamaður fyrir Katrínu Björk Kristjánsdóttur
  • •Nanna Elísa Snædal Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins, varamaður fyrir Davíð Þorláksson
  • Rebekka Karlsdóttir, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, varamaður fyrir Brynhildi Kristínu Ásgeirsdóttur
  • Sigurður Tómasson, hagfræðingur, varamaður fyrir Katrínu Atladóttur

Háskólaráð fundar alla jafna einu sinni í mánuði og má nálgast fundargerðir ráðsins á vef Háskóla Íslands.
 

Nýskipað háskólaráð fyrir tímabilið 1. júlí 2022 til 30. júní 2024.