16. janúar 2023
Ókeypis aðstaða fyrir frumkvöðla í Sprotamýri HÍ
Ertu að vinna að nýsköpunarverkefni en vantar aðstöðu? Háskóli Íslands býður nemendum og starfsfólki ókeypis aðstöðu í Sprotamýri – frumkvöðlasetri skólans í Grósku til að þróa hugmyndir sínar. Í Grósku er einnig að finna ýmsa stuðningsþjónustu við frumkvöðla og hún stendur starfsfólki og stúdentum einnig til boða þeim að kostnaðarlausu.
Er hugmyndin þín bara á frumstigi eða er hún lengra komin? Það skiptir engu máli. Aðstaðan er opin fólki með hugmyndir á öllum stigum og á öllum fræðasviðum.
Komdu í frjótt og styðjandi umhverfi frumkvöðla og fyrirtækja í Grósku.
Sæktu um sæti í Sprotamýri hér
Umsóknarfrestur er til 31. janúar.