Opið hús í Háskóla Íslands 2. apríl
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, sendi meðfylgjandi tilkynningu á starfsfólk og stúdenta í dag (1. apríl 2022):
„Það má með sanni segja að mikið líf sé í starfi Háskóla Íslands og það er verulega ánægjulegt að sjá þau miklu umskipti sem orðið hafa hér á Melunum frá því samkomutakmörkunum var aflétt. Háskólasvæðið kraumar hreinlega af lífi enda eru samræður í návígi oft undirstaða uppgötvana, ekki síst þar sem fólk úr ólíkum greinum hittist á kampus, jafnvel fyrir tilviljun. Þannig fæðast oft hugmyndir sem leiða til atvinnuskapandi verkefna og blómlegs reksturs. Háskóli Íslands leitar nú enn og aftur til ykkar kæru nemendur og samstarfsfólk eftir nýstárlegum hugmyndum í samkeppni um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ. Markmiðið er að hugmyndirnar geti stuðlað að samfélagslegum eða viðskiptalegum ávinningi en þær þurfa ekki endilega að hafa fjárhagslegan hagnað að leiðarljósi. Skilafrestur er á mánudag og hvet ég fólk af öllum fræðasviðum til að taka þátt en verðlaun fyrir fyrsta sætið nema allt að þremur milljónum króna.
Stafrænt fréttabréf skólans kom út í gær og ber það skýr merki um þann mikla nýsköpunarkraft sem ríkir innan Háskólans auk þess sem tengsl við samfélag og atvinnulíf eru í brennidepli. Í bréfinu er m.a. fjallað um stórmerkilega uppgötvun í nýrri rannsókn innan HÍ og Landspítala þar sem hjartamagnýl virðist hafa sterk og tölfræðilega marktæk verndandi áhrif gegn dauðsföllum meðal þeirra sem greinast með alvarlega lungnabólgu af völdum algengustu lungnabólgubakteríunnnar.
Í stefnu Háskóla Íslands, HÍ26, er áhersla á að nám og rannsóknir mæti þörfum íslensks samfélags og atvinnulífs og stuðli að sjálfbærum heimi. Að auki er vikið að mikilvægi þess að efla samstarf við samfélög á landsbyggðinni. Í fréttabréfinu er fjallað um rannsókn sem er einmitt á þessum nótum en hún getur stuðlað að sjálfbærri nýtingu auðlinda. Við Rannsóknasetur HÍ í Bolungarvík er nú verið að kanna hvort sjókvíar og lúsasmit hafi áhrif á far og dreifingu villtrar sjóbleikju og sjóbirtings í nærsjó en rannsóknin er unnin með aðkomu nemenda við HÍ og í samstarfi við atvinnulíf á Vestfjörðum.
Kæru nemendur. Menntunin er eitt allra mikilvægasta veganesti ykkar út í lífið en hún er líka undirstaða þjóðarhags því þekkingin er gjaldmiðill framtíðarinnar. Það er öllum brýnt að finna námsleiðir sem henta hæfileikum og áhuga. Þess vegna hvet ég ykkur til að koma á opið hús í Háskóla Íslands á morgun milli kl. 12 og 15. Þá gefst kjörið tækifæri til að kynna sér allt framhaldsnám í boði á öllum fræðasviðum HÍ ásamt þverfræðilegum leiðum. Hægt er að velja á milli meira en 200 spennandi námsleiða í framhaldsnámi sem skapa spennandi tækifæri í atvinnulífi og samfélagi. Á sama tíma er líka hægt að kynna sér allt grunnnám við HÍ.
Nemendur HÍ og kennarar verða á Háskólatorgi í opna húsinu ásamt öðru starfsfólki skólans og svara spurningum um hvaðeina sem tengist náminu og hugsanlegum störfum að því loknu. Náms- og starfsráðgjafar sem þekkja skólann út og inn hjálpa líka við að finna nám sem hentar áhuga og styrkleikum og falla að mögulegri prófgráðu hvers og eins. Einnig verður fólk frá alþjóðasviði HÍ sem veitir upplýsingar um spennandi tækifæri í útlöndum, þar á meðal skiptinám við fjölda erlendra háskóla sem margir eru í hópi þeirra allra bestu í heiminum. Þetta er frábært tækifæri til að kynna sér frekara nám. Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem lagt hafa á sig ómælda vinnu við undirbúning opna hússins.
Upplýsingatækni hefur reynst lykill að mikilvægri þróun þjónustu og hagræðingu. Við viljum enda að breytingar tengdar henni hafi jákvæð og víðtæk áhrif sem nýtast í þágu starfsfólks, nemenda og starfseminnar allrar. Við sjáum nú merki um stafræna umbyltingu þjónustu víða í starfi skólans, t.d. í nýlegu námsvalshjóli á vef HÍ. Hjólið hefur stutt fjölmörg við val á námi þar sem unnt er að tengja saman áhugasvið og námsleiðir sem veita svo möguleika á fjölbreyttum störfum í samfélaginu. Í vikunni stigum við enn eitt mikilvægt skref í upplýsingatækni þegar við handsöluðum samning við Veðurstofu Íslands um fjölbreytt samstarf á sviði hýsingar og samnýtingar vélbúnaðar. Í stefnu skólans er áhersla á frjótt samstarf við opinberar stofnanir. Veðurstofan er ein af þeim mikilvægu íslensku stofnunum sem Háskóli Íslands hefur átt afar gott samstarf við í gegnum árin, ekki síst á sviði vár sem tengist eldsumbrotum og jarðhræringum. Það er gott að styrkja það samstarf á fleiri sviðum.
Ég hef oft vikið að því hér að hlutverk háskóla sé að takast á við brýnar áskoranir. Það gerum við á marga vegu, t.d. með því að veita alþjóðlegu samfélagi stuðning þegar á bjátar. Við höfum unnið markvisst að því að útbúa laust húsnæði á Sögu, nýjustu byggingu HÍ, fyrir flóttafólk frá stríðshrjáðum svæðum í Úkraínu. Þar höfum við hátt í hundrað herbergi til reiðu fyrir flóttafólk og eru fyrstu hóparnir nú þegar fluttir inn.
Kæru nemendur og samstarfsfólk. Látum gott af okkur leiða. Góða helgi.
Jón Atli Benediktsson, rektor“