Skip to main content
20. janúar 2025

Sálfræðiráðgjöf háskólanema einnig fyrir börn stúdenta og starfsmanna

Sálfræðiráðgjöf háskólanema einnig fyrir börn stúdenta og starfsmanna - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sálfræðiþjónusta við börn háskólanema og starfsmanna HÍ á vegum Sálfræðiráðgjafar háskólanema hefur verið opnuð á ný eftir jólafrí. Þar veita MS-nemar í klínískri barnasálfræði þjónustu undir handleiðslu dr. Dagmarar Kr. Hannesdóttur, lektors við Sálfræðideild og sérfræðings í klínískri barnasálfræði, en hún státar af 20 ára starfsreynslu á þessu sviði. Í boði er ráðgjöf og bein meðferð fyrir foreldra, börn og unglinga á aldrinum 3-18 ára við eftirfarandi vanda: 

  • Kvíða, fælni og áráttu-þráhyggju
  • Depurð og slakri sjálfsmynd
  • ADHD og erfiðri hegðun
  • Samskiptaþjálfun 
  • Svefnvanda

Nemendur og starfsmenn greiða aðeins kr. 1.500 fyrir hvern tíma sem er umtalsvert lægra en á hinum almenna markaði.

Ef annar en ofangreindur vandi er til staðar er hægt að hafa samband við Sálfræðiráðgjöfina og þá verður metið hvort hægt sé að veita aðstoð við honum. Athugið að ekki fer fram formlegt greiningarferli á vegum Sálfræðiþjónustunni varðandi ADHD, einhverfu, námserfiðleika eða þroskafrávik. 

Hægt er að senda inn beiðni um þjónustu hér 
 

Nýi Garður