Skip to main content
12. október 2020

Sálrækt í boði fyrir háskólanema í vetur

""

Nemendum við Háskóla Íslands býðst að sækja svokallaða Sálrækt í vetur á vegum Sálfræðiráðgjafar háskólanema en um er að ræða hópmeðferð fyrir þau sem vilja leysa úr sálrænum vanda eða bæta geðheilsu sína eða samskipti. Hópfundir verða haldnir í Setbergi, húsi kennslunnar við HÍ, og fundað verður vikulega á þriðjudögum kl. 14-15.30. Fyrsti fundur nú á haustönn verður þann 20. október.

Sálrækt hefur verið starfrækt frá árinu 2018 undir stjórn dr. Gunnars Hrafns Birgissonar, sérfræðings í klínískri sálfræði og forstöðumanns Sálfræðiráðgjafar háskólanema, og sálfræðinganna Jóhanns Pálmars Harðarsonar, Kristjönu Þórarinsdóttur og Kristjáns Helga Hjartasonar sem stunda doktorsnám við Sálfræðideild skólans. Unnið er út frá tilvistarsálfræði og hugrænni tilfinninga- og atferlismeðferð. 

Áhugasöm geta sent póst á hopmedferd@hi.is með nafni sínu og símanúmeri til að sækja um þátttöku. Athugið að þátttökufjöldi er takmarkaður og háður bæði húsrými og viðeigandi sóttvarnarreglum. Fyrstu umsækjendur komast að fyrstir. Af biðlista geta svo nýir komist að eftir því sem pláss opnast. Þátttakan er gjaldfrjáls. 

Nánari upplýsingar um Sálfræðiráðgjöf háskólanema og Sálrækt.

Nemendur á gangi