Skip to main content
24. janúar 2025

Samið um áframhaldandi kennslu í hindí og indverskum fræðum

Samið um áframhaldandi kennslu í hindí og indverskum fræðum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands og Indian Council for Cultural Relations (ICCR) hafa gert samkomulag um að halda áfram samstarfi um að bjóða upp á námskeið í hindí og indverskum fræðum við Háskóla Íslands. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirritaði samninginn fyrir hönd skólans og R Ravindra, sendiherra Indlands á Íslandi fyrir hönd ICCR.

Samningurinn felur m.a. í sér að ICCR kosti stöðu sendikennara eða gestaprófessors sem sinnir kennslu í greininni ásamt því að standa fyrir erindum og kynningum á hindí  og indverskri menningu við skólann.

Námskeið í hindí og indverskri menningu hafa verið í boði á vegum Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands allt frá árinu 2019 og samkvæmt samkomulaginu nýja er gert ráð fyrir að boðið verði upp á að minnsta kosti tvö námskeið á hverju misseri, nemendum að kostnaðarlausu. Tvö námskeið eru í boði á yfirstandandi misseri eins og lesa má um á vef HÍ.

Viðstödd undirritunina voru auk rektors og sendiherra Indlands þau Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar HÍ, Shilpa Khatri Babbar, sem sinnir kennslu í greininni um þessar mundir, og Anisha Tomar frá sendiráði Indlands á Íslandi. 
 

Fulltrúar Háskóla Íslands og sendiráðs Indlands við undirritun samningsin. Efri röð frá vinstri: Ólöf Garðarsdóttir, Eyjólfur Már Sigurðsson, Shilpa Khatri Babbar og Anisha Tomar. Sitjandi eru R Ravindra og Jón Atli Benediktsson.