Samstarf um rannsóknir á taugahrörnun
Rannsóknarstofan Mál og tækni (M&T) við Háskóla Íslands vinnur nú að verkefninu Mat á vitrænni hnignun með sjálfvirkri málgreiningu sem er hluti af Markáætlun í tungu og tækni. Verkefnið er unnið í samstarfi við atvinnulíf og stofnanir utan skólans og nú á dögunum var undirritaður mikilvægur samstarfssamningur um útfærslu á verkefninu milli Máls og tækni, heilbrigðistæknifyrirtækisins Mentis Cura, Minnismóttöku Landspítalans og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Anton Karl Ingason, dósent í íslenskri málfræði og máltækni við Íslensku- og menningardeild HÍ, stýrir rannsóknarstofunni M&T og er verkefnisstjóri í þessu verkefni. Hann leiðir daglega framvindu verksins ásamt Elenu Callegari, nýdoktor við M&T og Lilju Björk Stefánsdóttur, verkefnastjóra við M&T. Meðal annarra sem koma að verkefninu hjá HÍ eru Rósa Signý Gísladóttir, dósent í almennum málvísindum, og Iðunn Kristínardóttir og Agnes Sólmundsdóttir. Iðunn og Agnes munu vinna með þátttakendum í rannsókninni en þær hafa áður komið að öðrum verkefnum rannsóknarstofunnar, svo sem á sviði sjálfvirkrar málfarsráðgjafar, kynjahalla í vélþýðingum og annarsmálsfræða.
Mentis Cura hefur um árabil unnið að vöruþróun á lausnum sem styðja við greiningar á sjúkdómum sem tengjast miðtaugakerfi, svo sem heilabilun og ADHD. Sigla®, lausn sem fyrirtækið hefur sett á markað á alþjóðlegum vettvangi, greinir mælingu úr heilalínuriti með aðferðum vélræns náms og ákvarðar taugahrörurnarvísi fyrir manneskju út frá þessum upplýsingum en þessi tækni getur stutt við klínískt greiningarferli. Í því samstarfi sem nú er hafið felst að M&T mun nota nýjar lausnir í máltækni til að greina einkenni taugahrörnunar út frá málsýnum og tvinna þessar niðurstöður saman við taugahrörnunarvísi fyrirtækisins. Kristinn Johnsen og Magnús Jóhannsson munu hafa yfirumsjón með aðkomu fyrirtækisins að verkefninu.
Minnismóttaka Landspítalans tekur þátt í verkefninu með því að kynna rannsóknina fyrir væntanlegum þátttakendum, framkvæma klínísk próf á þeim og veita sérfræðiráðgjöf um þá sjúkdóma sem um ræðir og túlkun á klínískum niðurstöðum. Jón Snædal öldrunarlæknir mun hafa yfirumsjón með aðkomu Minnismóttökunnar að verkefninu.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum tekur þátt í því að þróa málfræðilegan ramma sem lagður verður til grundvallar greiningu sem byggir á málsýnum. Einar Freyr Sigurðsson, rannsóknarlektor við stofnunina, er fulltrúi stofnunarinnar í samstarfinu.