Síðustu forvöð að senda inn útdrátt á Frændafund
Íslensk-færeyska ráðstefnan Frændafundur verður haldin dagana 16.-18. ágúst næstkomandi í Háskóla Íslands en hún er opin fræðafólki af öllum sviðum Háskóla Íslands. Frestur til að senda inn 300-400 orða útdrátt að fyrirlestri er til 1. apríl næstkomandi en þátttaka í ráðstefnunni er ókeypis.
„Frændafundur er samstarfsvettvangur Háskóla Íslands og Fróðskaparseturs Færeyja og fer nú fram í 11. sinn. Ráðstefnan var fyrst haldin við HÍ 1992 en síðan þá hefur hún verið haldin á þriggja ára fresti og til skiptis á Íslandi og í Færeyjum. Frá og með næsta Frændafundi verður ráðstefnan haldin á 2 ára fresti,“ segir Jóhannes Gísli Jónsson, prófessor í íslensku og formaður Færeyjanefndar HÍ, sem vinnur að undirbúningi ráðstefnunnar.
Á ráðstefnunni er fjallað um margvísleg viðfangsefni sem tengjast Íslandi eða Færeyjum en markmiðið er að leiða saman íslenska og færeyska vísindamenn á ólíkum fræðasviðum og skapa ný tækifæri til rannsóknasamstarfs milli þessara frændþjóða.
„Hugvísindi hafa lengi verið mjög fyrirferðarmikil á ráðstefnunni en núna er stefnt að því að önnur fræðasvið verði sýnilegri en áður. Þetta kemur skýrast fram í því að nú eru fimm boðsfyrirlesarar, hver frá sínu fræðasviði,“ segir Jóhannes Gísli og bætir við að fjölmörg ónýtt tækifæri séu til samstarfs við frændur okkar í Færeyjum á sviði vísinda.
Aðaltungumál ráðstefnunnar hafa verið íslenska og færeyska en að þessu sinni er enska aðaltungumálið. Fyrirlestrar um hugvísindi eiga þó að vera á íslensku, færeysku eða öðru norðurlandamáli.
Fyrirlestrum á ráðstefnunni verður raðað saman eftir viðfangsefnum og fræðasviðum og geta þeir sem vilja skipuleggja málstofur um tiltekin efni haft samband við Jóhannes Gísla á netfangið jj@hi.is.
Að ráðstefnunni standa Færeyjanefnd Háskóla Íslands, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Málvísindastofnun HÍ og Íslandsnefnd Fróðskaparseturs Færeyja.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vef Færeyjanefndar HÍ.