Sjálfbærar samgöngur í brennidepli á Grænum dögum Gaia
Gaia, félag meistarasnema í umhverfis- og auðlindafræði, stendur að Grænum dögum 1. til 3. mars í Háskóla Íslands. Í boði eru fjölbreyttir fyrirlestrar, kvikmyndasýning og ýmislegt fleira sem tengist þema daganna
Grænir dagar eru haldnir árlega í Háskóla Íslands með það að markmiði að varpa ljósi á og upplýsa nemendur, starfsfólk og almenning um ýmis umhverfismál. Þemað í ár eru sjálfbærar samgöngur. Ýmsir gestafyrirlesarar munu koma alls staðar að og bjóða upp á fjölbreyttar vinnustofur, fyrirlestra og kynningar með innsýn og lausnir á sjálfbærum samgöngum. Á Grænum dögum verður m.a. pallborð samgönguverkfræðinga, rætt um loftmengun á Íslandi, kynning frá Strætó og Arctic Expeditions og margt fleira. Allir viðburðir Grænna daga munu fara fram á staðnum.
Á dögunum verður einnig 50% afsláttarsvæði fyrir Hopp hjól í boði!
Nánari upplýsingar um hvern viðburð eru aðgengilegar á Facebook
Miðvikudagur 1. mars
- 15:00: Strætó: Breytingar og næturstrætó - Aðalbygging A-050
- 16:00: Að takast á við lloftslagsbreytingar - Litla Torg
- 17:30: Framtíð samgönguverkfræði - Veröld VHV-008
Fimmtudagur 2. mars
- 15:00: Borgarlínan - Veröld VHV-008
- 15:30: Undirbúningur hægrar eldunnar - Eiríksbúð
- 16:00: Loftmengun í Reykjavík - Askja, N-129
- 19:00: Kynningar á hægri eldun & Kvöldmatur - Eiríksbúð
- 20:00: Bíó: Black Trail - Eiríksbúð
Föstudagur 3. mars
- 15:00: Samgöngur á heimsskautasvæðum - Askja, N-129
- 17:00: 84 daga ganga í kringum Ísland - Askja, N-128
Nánari upplýsingar fyrir hvern viðburð eru aðgengilegar á Facebook.