Skráning hafin á 20. líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnuna
Opnað hefur verið fyrir móttöku ágripa og skráningu á 20. líf- og heilbrigðisvísindaráðstefnu Háskóla Íslands. Ráðstefnan fer fram dagana 2. og 3. júní 2021 í streymi og á Hilton Reykjavík Nordica, eftir því sem samkomureglur leyfa. Á ráðstefnunni verður hægt kynna sér það sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum á Íslandi. Það er ókeypis á ráðstefnuna og hún er opin öllum innan HÍ og utan.
Á dagskrá ráðstefnunnar verða málstofur, örfyrirlestrar, spennandi gestafyrirlesarar og opnir fyrirlestrar fyrir almenning. Sérstök áhersla er lögð á að málstofur á ráðstefnunni verði þverfræðilegar til þess að tengja saman vísindafólk úr ólíkum greinum. Einnig verður boðið upp á málstofur á ensku.
Heilbrigðisvísindasvið býður öllum þeim sem stunda rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum að senda inn ágrip á ráðstefnuna. Skilafrestur ágripa er til miðnættis 22. mars.
Skráning, skil ágripa og nánari upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar: lifogheil.hi.is
Ráðstefnan fór síðast fram í ársbyrjun 2019 og var ein sú fjölmennasta frá upphafi. Þar voru um 300 rannsóknir til umfjöllunar og viðfangsefni þeirra af ólíkum toga úr flestum greinum líf- og heilbrigðisvísinda.
Undirbúningur og framkvæmd 20. ráðstefnunnar er í höndum skrifstofu Heilbrigðisvísindasviðs og sérstakrar ráðstefnunefndar. Í nefndinni sitja:
- Helga Jónsdóttir, formaður og prófessor við Hjúkrunarfræðideild
- Ásgeir Haraldsson, prófessor við Læknadeild
- Bryndís Eva Birgisdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild
- Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild
- Elvar Örn Viktorsson, lektor við Lyfjafræðideild
- Erna Rún Einarsdóttir, lektor við Tannlæknadeild
- Fanney Þórsdóttir, dósent við Sálfræðideild
- Jóhanna Jakobsdóttir, rannsóknasérfræðingur við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
- Þórarinn Sveinsson, prófessor við Námsbraut í sjúkraþjálfun