Skýrsla starfshóps um álitaefni tengd tekjuöflun HHÍ
Skýrsla starfshóps á vegum rektors, sem ætlað var að meta siðferðileg og önnur álitaefni tengd tekjuöflun Happdrættis Háskóla Íslands (HHÍ), er nú aðgengileg á vef Háskólans.
Rektor setti starfshópinn á laggirnar í fyrra í kjölfar mikillar umræðu í samfélaginu um skaðsemi spilakassa en slíkir kassar hafa verið meðal tekjuöflunarleiða HHÍ í nærri tvo áratugi. Var starfshópnum m.a. falið að skoða rannsóknir sem tengjast málefninu, bæði um viðhorf í samfélaginu og eins um spilafíkn, ásamt staðreyndum sem tengjast húsbyggingum og lagaramma happdrættisins.
Í skýrslunni er því bæði farið yfir nýjustu rannsóknir á tengslum spilafíknar og eyðslu í peningaspil, þær aðgerðir sem HHÍ hefur gripið til til þess að stuðla að ábyrgri spilun og þá ótvíræðu þýðingu sem sem tekjur HHÍ hafa fyrir uppbyggingu innviða Háskólans.
Skýrsluna í heild má nálgast hér